Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.08.1991, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTASKÓLAR Þráinn Hafsteinsson, íþróttafræðingur á Laugarvatni skrifar: íþróttaskólar fyrir börn - hvernig og hvers vegna? íþróttaskólar fyrir börn hafa rutt sér til rúms í 8 nágrannalöndum okkar undanfarin ár og hafa nokkrir slíkir verið starfræktir hér á landi. Þráinn Hafsteinsson, íþróttafræð- ingur á Laugarvatni er lesendum Skinfaxa að góðu kunnur, en hann hefur skrifað allnokkrar lærðar greinar í blaðið. í grein Þráins sem hér fer á eftir segir hann að allar lík- ur bendi til þess að börn sem fá fjöl- breytta íþróttakennslu frá unga aldri hafi meiri möguleika til þess að ná langt í afreksíþróttum heldur en þau sem fá einhæfari þjálfun. Þrá- inn segir að jákvæð reynsla af íþróttum skipti sköpum hvað áfram- haldandi íþróttaástundun viðkemur. Þráinn fjallar hér á siðunum um iþróttaskóla fyrir börn, markmiðin með starfrækslu þeirra og undir- búning að stofnun og starfrækslu slíkra skóla. Markmiðin - hvers vegna íþróttaskóli? Markmiðið með íþróttaskóla fyrir börn er að gefa þeim tækifæri til að kynnast íþróttum á jákvæðan og fjöl- breyttan hátt. Annars vegar á þann hátt að þau hafi góðan hreyfifærni- grunn til að byggja sérgrein sína á og hins vegar að vekja hjá þeim varan- legan áhuga á íþróttum. Hvernig verður markmið- unumnáð? Allar líkur benda til þess að þau börn sem fá fjölbreytta íþróttakennslu á unga aldri hafi meiri möguleika á að ná lengra í afreksíþróttum heldur en þau sem fá einhæfari þjálfun hafa. Þá bendir allt til þess að börn sem hafa jákvæða reynslu af íþróttum á unga aldri séu mun líklegri til þess að stunda þær fyrir lífstíð, heldur en þau sem fóru á mis við slíka reynslu. Til að tryggja þessa víðtæku hreyfir- eynslu er námskeiðum eða þjálfun barnanna gefið nafnið íþróttaskóli. 1 því orði felst að stundaðar skulu íþróttir af ýmsu tagi sem tryggja betur fjölbreytilega íþróttalega undirstöðu, en þjálfun einnar íþróttagreinar gerir. Að berjast gegn straumn- um Ekki fer á milli mála að síðustu tvo áratugi hefur verið sterk tilhneiging til þess að mun yngri börn en áður sérhæfi sig sem fyrst og þjálfi sig meira og meira í íþróttum. Hald manna var að því fyrr sem börn og unglingar æfðu eins og fullorðnir því meiri líkur væru á að þau yrðu fram- úrskarandi afreksmenn. Nýjustu rannsóknir benda hins vegar afdrátt- arlaust til þess að þessu sé öfugt farið. Niðurstöður benda til þess að fjöl- breytt, skemmtileg þjálfun í formi leikja leggibesta grunninn að framtíð- arafrekum barnanna. Hingað til hefur sú þjálfun því miður ekki verið nægi- leg. Með öðrum orðum, það vita ekki nægilega margir hverskonar íþrótta- iðkun er best fyrir barnið í upphafi. Það má því búast við verulegu mót- læti þeirra sem ekki hafa kynnt sér þann árangur sem slik þjálfun hefur í för með sér. Verið viðbúin því að berjast gegn straumnum, gegn þeim sem eingöngu mæla íþróttauppbygg- ingu barna í sigrum, metum og verð- launapeningum. Hvað er íþróttaskóli fyrir börn? íþróttaskóli fyrir börn byggir á þeirri grunnhugmynd að kynna þátttakend- um sem flestar íþróttagreinar til að gefa þeim möguleika á að kynnast hreyfimynstri einstakra greina og auka þannig hreyfiþroska þeirra. Eft- ir að slíkur grunnur hefur verið lagður getur sérhæfing í hinum ýmsu íþrótta- greinum komið til. Iþróttaskólinn á að hafa þarfir og óskir barnsins í fyrirrúmi og hann á að leggja verk- efni í íþróttum þannig upp að leikur og gleði séu ávallt í öndvegi. Iþróttaskólinn á að halda keppni milli einstaklinga í lágmarki, en leggja Hástökk á frjálsíþróttamóti Gogga galvaska í Mosfellsbœ. Skinfa.xi 7

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.