Skinfaxi - 01.08.1991, Qupperneq 31
FRJÁLSAR í Þ R Ó T T I R
á allra seinustu árum og ætla má að geti
miklu meira er Friðgeir Halldórsson í
USAH. Hann er fjölhæfur, sigraði í
langstökki og varð annar í spjótkasti,
110 m grindahlaupi og stangarstökki í 2.
deild. Það er enginn vafi á því að Frið-
geir getur með markvissum æfingum
orðið góður tugþrautarmaður.
Skagfirskur sigur í 200 m
og 400 m hlaupi karla
Annar efnilegur frjálsíþróttamaður sem
á að geta mikið betur er Friðrik Steins-
son, UMSS. Hann er búinn að vera
efnilegur í 7-8 ár en vantar að því virðist
um tveggja ára stífa þjálfun til að verða
rneðal þeirra bestu hér á landi. Friðrik
sigraði örugglega í 200 m og 400 hlaupi
í 2. deildinni. Hann hleypur vel og ætti
að hafa góða möguleika á að hlaupa vel
undir 50 sek. í 400 m hlaupi.
Birgitta gaf ekkert eftir
Birgitta Guðjónsdóttir, UMSE, sigraði
örugglega í spjótkasti og kúluvarpi í 1.
deild auk þess að vera í verðlaunasæt-
um í 400 m grindahlaupi og 800 m
hlaupi. Birgitta er búin að keppa í rúm-
lega 10 ár, lengst af rneð HSK, og sýnir
alltaf sömu keppnisgleðina. Hún þyrfti
áreiðanlega ekki mikið meiri æfingu til
að komast aftur í sitt besta form í sjö-
þrautinni sem var hennar aðalgrein fyrir
nokkrum árum. Birgitta er jafnframt á-
gætur blakspilari, en undanfarna vetur
hefur liún æft þá grein með KA á Akur-
eyri.
Auöunn bætti sig í stöng-
inni
Eftir frekar dauft keppnistímabil framan
af mætti Auðunn Guðjónsson, HSK, í
Bikarkeppnina í hinu ágætasta keppnis-
formi. Hann varð annar í 400 m grinda-
hlaupinu og þriðji í stangarstökkinu með
persónulegt met 4,50 m. Auðunn á að
hafa alla burði til að bæta sig verulega í
tugþrautinni, en virðist ekki enn vera
búinn að ná nægilega góðum tökum á
öllum greinunum. Hann sýndi á Is-
landsmótinu í atrennulausum stökkum
árið 1990 að hann getur náð upp góðurn
styrk.
Iris Grönfeldt, Þórdís Gísladóttir og Marta
Ernstdóttir náöu allar lágmörkum fyrir
Heimsmeistaramótið íTokyo í sumar.
Islendingar Itafa ekkifyrrátt þrjá fulltrúa
kvenna á stórmóti sem þessu.
Skinfaxi
31