Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1991, Qupperneq 35

Skinfaxi - 01.08.1991, Qupperneq 35
ÍÞRÓTTAKENNSLA er fyrri sendandi eða seinni sendandi leikinn út í gegn. Það getur breyst í hvert sinn er lið fær sendiréttinn. Mun- ið að á meðan lið vinnur stig heldur sá áfram að gefa upp sem hafði síðustu sendingu. Undantekning frá því að seinni sendandi fái að gefa upp er þegar lotan hefst. Þá fær það lið sem byrjar lotuna aðeins fyrri sendanda í það skipt- ið, en eftir það er ávallt fyrri og seinni sendandi. í tvíliðaleik er lotan alltaf 15 stig óháð því um hvaða flokk er að ræða. Mynd 11. Fyrirsætan á myndunum er Broddi Kristjánsson landsliðsmaður í badminton. Söluaðili Yonex badmintonvaranna er Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 104 Reykjavík sími 91- 812266 Fax 687622 Mynd 12. Upphækkun Undantekningar eru stundum á því að leikið sé í 15 eða 11 stiga lotum. Sé staðan 13:13 má sá leikmaður (eða lið í tvíliðaleik) sern var fyrri til að ná 13 stigum framlengja lotuna í 18 stig og vinnur þá sá lotuna er fyrri verður til þess að ná 18 stigum. Ef staða er jöfn 14:14 má sá leikmaður (eða lið í tvíliða- leik) sem var fyrri til að ná 14 stigum framlengja lotuna í 17 stig. Munið að aðeins í fyrsta sinn sem staðan er 13:13 eða 14:14 má nota valið um upphækk- un. Athugið að ef neitað er vali á upp- hækkun í 13:13 má aftur velja í 14:14 verði sú staða uppi. Ef neitað er í 14:14 endar lotan 15:14þ Ef leikið er í 11 stig má velja um hækkun í 9:9 eða 10:10, en í báðum þessum tilfellum má einungis hækka í 12 stig. I þessari grein minni um badminton hef ég farið í nokkur atriði sem ættu að koma byrjendum og jafnvel lengra komnum að góðu gagni þegar badmint- onvertíðin hefst nú í haust. Þegar rit- stjóri bað mig að setja nokkra punkta niður á blað um badmintonkennslu varð mér strax Ijóst að erfitt yrði að vera stuttorður. Það sem hér hefur komið fram kann sumum að finnast tormelt, en ég vil minna á að það getur tekið nokkur ár að ná mjög góðum árangri í þessari í- þrótt. En aðalatriðið er auðvitað að hafa gaman af þessu í góðunt félagsskap og fá útrás á líkama og sál. Að lokum vil ég hvetja sem flesta til þess að taka sér spaða í hönd og spila badminton. Góða skemmtun. Skinfa.xi 35

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.