Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 14

Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 14
Freygarður Þorsteinsson skrifar um úrslit í skákinni: Keppni með breyttu sniði Alls tóku 12 lið þátt í skákkeppni landsmótsins að þessu sinni. Keppnin var með eilítið breyttu sniði frá síðustu landsmótum, nú voru aðeins tefldar 5 umferðir eftir Monradkerfi í stað 6 um- ferða eins og á undanförnum landsmót- um. Þessi breyting þýddi að keppnin varð enn harðari og hver vinningur gat skipt miklu um endanlega röð sveita. Fyrir mótið var búist við að baráttan um 1. sætið stæði á milli UFA, sem sigraði á landsmótinu 1990 og UMSK, sem þá hlaut 2. sætið. Einnig var ljóst að sveitir Umf. Geisla og HSB mættu að venju sterkar til leiks. Allar þessar sveitir byggja á sterkum 1. deildar lið- um í skák. Sveitir USAH og UMSE voru einnig taldar geta blandað sér í baráttuna, en aðrar sveitir voru nokkuð óþekktar stærðir. Strax frá upphafi var ljóst að sveit UMSK ætlaði sér ekkert annað en sig- ur. Eftir 4:0 sigur á Keflavík í 1. um- ferð, og 2,5:1,5 sigur gegn HSB í 2. umferð, mætti UMSK sveitin UFA í 3. umferð. UMSK vann stórsigur, 4:0, og lagði grunninn að sigri á mótinu. Umf. Geisli tryggði sér 2. sætið með góðum endaspretti og UMSE hlaut 3. sætið eftir harða baráttu við HSB og UFA. Lokastaðan í skákkeppninni varð annars sem hér segir: 1. UMSK 15,5 v. 2. Umf. Geisli 13 v. 3. UMSE 11,5 v. 4. HSB 11,5 v. 5. UFA 11 V. 6. UÍA 10,5 v. 7. UDN 9,5 v. 8. HSK 9 v. 9. HSS 8 v. 10. USAH 7,5 v. 11. Keflavfk 6,5 v. 12. UMSB 6,5 v. Sigursveit UMSK skipuðu þeir Sævar Bjarnason, Róbert Harðarson, Jónas P. Erlingsson og Jón Þór Berg- þórsson. Bestum árangri á hverju borði, af þeim sem tefldu 4 skákir eða fleiri, náðu: Á 1. borði: Sævar Bjarnason, UMSK, Guðmundur Gíslason, Umf. Geisla og Jón Kristinsson, HSS, allir með 4 vinninga úr 5 skákum. Á 2. borði: Róbert Harðarson, UMSK, með 4,5 vinninga úr 5 skák- um. Á 3. borði: Jónas P. Erlingsson, UMSK, og Jóhann Þorsteinsson, UÍA, með 4 vinninga úr 5 skákum. Á 4. borði: Guðmundur Freyr Hans- son, UMSE, Guðmundur Daðason, HSB og Unnar Þór Guðmundsson, UMSB, allir með 3 vinninga úr 4 skák- um. er þmn sparisjóður Þrír £fóðir ávöxtunarkostir TRIIMDRIÍK ) fyrir Þá sem viiía 9°&a ávöxtun en vilja jafnframt inumraun geta gengi& að sparifé sínu hvenær sem er. nnví»í»l0nni/ 5'r,r ba sem viiÍa binda sparifé sitt til ávöxtunar. UKiUuIuDuK Ávöxfun sparifjár á Öryggisbók veitir alltaf sama öryggi og verötrygging. i • i 24 mána&a reikningur fyrir jbó sem vilja njóta « ‘ hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. Innstæða er undanþegin eignaskatti. Gaflnkv&mt traust Þeir njóta trausts hjá sparisjóðnum sem ávaxta fé sitt á Trompbók, Öryggisbók eða Bakhjarli. Þeim opnast ýmsar leiðir hjá spari- sjóðnum til hagsbóta fyrir sig og sína. Komdu í sparisjóðinn Sparisjóður Mýrasýslu býður ekki einungis sömu þjónustu og sömu kjör oa aðrar peningastofnanir í landinu, heldur nýtur þú þess að við þekkjum okkar heimafólk, þarfir þess og aðstæður. Þess vegna er Sparisjóður Mýrasýslu þinn sparisjóður. SPARISJOÐUR MYRASYSLU •er þinn sparisjóður Góðnr lilliiinaijiir fnrir fæfmnuninn SERSMIÐAÐIR SKOR VARMAHLÍFAR ÍÞRÓTTASKÓR HALSKRAGAR HLAUPASKOR BARNASKÓR INNISKÓR BAKBELTI INNLEGG SPELKUR Sendum í póstkröfu um allt land SK0ST0FAN OSSUR HVERFISGÖTU 105 • SÍMI: 91- 62 63 53 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.