Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 16
Kristján Halldórsson skrifar um úrslit í handbolta:
Rigning háöi leikmönnum
Handknattleikskeppnin á lands-
mótinu fór fram úti við á malbiki við
frekar slæmar aðstæður. Rigning var
og háði það leikmönnum töluvert þar
sem boltinn blotnaði og varð þungur
og háll. Mikið var rætt um meðal þjálf-
ara og leikmanna, að tímabært væri að
fara að spila handboltann inni í fram-
tíðinni, þar sem leikurinn er mjög háð-
ur því að hann sé spilaður við góðar
aðstæður.
Urslit leikja komu engum á óvart.
Gengið var að því sem vísu að lið
UMSK kæmi sterkt til leiks og sú varð
raunin. Liðið gekk í gegnum þetta mót
án teljandi erfiðleika. UMSK vann A-
riðil og Keflavík kom þar á eftir, eftir
stórsigur á UÍA. í B-riðli vann HSK án
teljandi erfiðleika, en þeirra lið var
skipað ungum stúlkum úr liði Selfoss.
Lið UMFG lenti í öðru sæti eftir sigur
á HSÞ.
í leikjunt um sæti vann UÍA HSÞ
sannfærandi og var gleðilegt að sjá að
á Austurlandi eru margar efnilegar
stúlkur sem spila handbolta og væri
það mjög gott fyrir greinina að þær
færu að taka þátt í Islandsmótinu, því
þar hafa þær fullt erindi.
Baráttan um 3. sæti
Leikurinn um 3. sæti stóð á milli ná-
grannanna Keflavíkur og UMFG.
Áhorfendur fengu að sjá spennandi
leik sem lauk með sigri Keflavíkurliðs-
ins 15-13. Var óneitanlega gaman að
fylgjast með þessum leik og í báðum
liðunum eru körfuboltaleikmenn sem
eiga fullt erindi í handbolta.
Leikurinn um 1. sætið stóð milli
UMSK og HSK, en ungu stúlkurnar úr
HSK áttu á brattann að sækja gegn
reyndum leikmönnum UMSK, sem
voru allar úr meistaraflokksliði Stjöm-
unnar. Þrátt fyrir ójafnan leik var gam-
an að sjá til leikmanna og í liði HSK
voru nokkrir ungir og efnilegir leik-
menn, sem gaman verður að fylgjast
með í náinni framtíð. Lið UMSK spil-
aði vel á mótinu og þarf mikið að
koma til ef UMSK á ekki eftir að vinna
handboltamót á landsmóti í náinni
framtíð.
Markahæstu leikmenn á mótinu
voru Laufey Sigvalda, UMSK, sem
skoraði 24 mörk, Björk Tómasdóttir,
HSK, sem skoraði 21 mark og Brynja
Hafsteinsdóttir, Keflavík, sem skoraði
20 mörk.
Það er von mín að í framtíðinni fari
handboltakeppnin fram innanhúss á
landsmóti UMFÍ, því munurinn á gæð-
um boltans er mikill eftir því við hvaða
aðstæður er leikið.
Sjáumst í Borgarnesi.
JAROVARMI
ÍSLANDS
Látið SET einangrun
vernda varmann
Eyravegi 43 - 800 Selfossi nf||
Box 83 - Sími 98-22700
16
Skinfaxi