Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 26
og náði þeim stigum sem dugðu Þing- eyingum til að sigra í karlakeppninni. Róbert Sigurðsson er nýliði eins og aðrir liðsmenn UIA en er allgott glímumannsefni. Hann skellti m.a. Yngva Ragnari og var það vasklega gert. Pétur Eyþórsson glímdi létt og lipurt og kom vel frá glímunni þó hann hlyti ekki vinning. Karlar -84 kg flokkur-úrslit: 1. Arngeir Friðriksson HSÞ 7 v. 2. Olafur Sigurðsson HSK 5,5 v. 3. Kristján Yngvason HSÞ 4,5 v. 4-5. Sigurður Kjartansson IJSÞ 4 v. 4-5. Lárus Kjartansson HSK 4 v. 6. Stefán Bárðarson UV 2 v. 7. Arni Friðriksson UMSS 1 V. 8. Kjartan Kárason HSK 0 v. Hér var Arngeir Friðriksson, hinn knái bóndasonur úr Aðaldalnum, hinn öruggi sigurvegari. Arngeir glímdi að vanda af drengskap og karlmennsku og sýndi enn hin ótrúlegu hábrögð sín, en það er með ólíkindum hversu hátt jafn lágvaxinn maður sveiflar stærðar mönnum í klofbragði og lausamjöðm. Hinn hávaxni og fjaðurmagnaði Ólafur Sigurðsson kom næstur. Ólafur glímdi ekki af fullum styrk vegna meiðsla en var þó öruggur um annað sætið. Gerði jafnglími við Kristján en lagði aðra fyrir utan Arngeir. Hinn gamalreyndi Kristján Yngva- son hefur þrívegis sigrað í þessum flokki á fyrri landsmótum og varð nú í þriðja sæti. Hann var farinn að glíma á landsmótum áður en flestir keppendur í flokknum fæddust! Kristján fer varlega í glímunni og bíður þess að andstæð- ingurinn missi þolinmæðina og sæki of langt. Þá er Kristján fljótur til með sitt langa, lága klofbragð og skilar mönn- um örugglega í gólfið. Jafnir í næstu sætum urðu þeir Lárus og Sigurður. Lárus er, ásamt Ólafi Sig., talinn efnilegasti glímumaðurinn af yngri kynslóðinni en hann er aðeins 16 ára, stór og stæltur. Honum tókst að fella Kristján á glæsilegu klofbragði og stóð vel fyrir sínu. Stefán Bárðarson var eini fulltrúi Reykjavíkur að þessu sinni og náði sér ekki vel á strik þrátt fyrir ágæta til- burði. Stefán er frísklegur glímumaður en virðist skorta úrslitabrögð. Skagfirðingar hafa verið lítt við glímu kenndir undanfarna áratugi en nú hafa nokkrir ungir menn á Sauðár- Lárus Kjartansson og Arni Friðriksson eig- ast við. króki hafið glímuiðkun þrátt fyrir ó- hæga aðstöðu því það væri synd að segja að forystumenn íþróttamála bæj- arins hafi greitt götu þeirra. Þessir ungu menn hafa enga aðstöðu til æf- inga og því kom þeirra maður, Arni Friðriksson, illa æfður á mótið og lenti neðarlega. Það var leitt því Arni er vasklegur maður og gæti með góðum æfingum orðið hinn liðtækasti glímu- maður. Kjartan Kárason er aðeins 15 ára, ekki stórvaxinn, og hefði í raun átt að keppa í léttasta flokki. Hann var þó skikkaður til að keppa í milliflokknum og átti þar ekki mikla möguleika þó hann sé léttleikamaður og prýðilega glímandi. Karlar +84 kg flokkur-úrslit: 1. Jóhannes Sveinbjörnsson HSK 6 v. 2. Eyþór Pétursson HSÞ 4+1 v. 3. Benedikt Matthíasson UÍA 4+0 v. 4. Pétur Yngvason HSÞ 3,5 v. 5. Arngrímur Jónsson HSÞ 2,5 v. 6. Kolbeinn Sveinbjörnsson HSK 1 V. 7. Davfð Jóhannsson UÍA 0 v. 8. Kristinn Guðnason HSK hætti keppni Hér mættust ekki færri en þrír fyrr- verandi glímukóngar og var hraustlega tekist á, enda burðarmenn miklir í flokknum. Jóhannes Sveinbjörnsson sem varð að sjá á eftir Grettisbeltinu til Hafnarfjarðar í Islandsglímunni í vor, var nú í mun betri æfingu en þá og sýndi það og sannaði að í góðri æfingu skáka honurn fáir. Jóhannes sem er manna stærstur og sterkastur, glímdi yfirvegað og var sigur hans aldrei í hættu. Eyþór Pétursson, hinn lipri og fjöl- brögðótti Þingeyingur, fékk byltu fyrir Ingveldur Geirsdóttir og Heiða B. Tómas- dóttir hefja úrslitaglímuna. Pétri félaga sínum og varð að glíma um annað sætið við Benedikt, og sigr- aði. Benedikt Matthíasson kom á óvart með því að komast á milli Þingeying- anna og ná þriðja sætinu. Benedikt er nýliði í glímunni, stór og stæltur en nokkuð stífur og glímir of mikið af kröftum. Pétur Yngvason, hinn keppnisreyndi Þingeyingur, sem tvívegis hefur sigrað á landsmóti, varð nú að láta sér fjórða sætið lynda, og var hann síst ánægður með það enda mikill keppnismaður. Pétri kom á óvart hörkusókn Benedikts og hlaut þá umdeilda byltu, en lagði aftur á móti Eyþór félaga sinn. Jafng- lími við Arngrím réði þó úrslitum um endanlega úrkomu Péturs, sem að öðr- um ólöstuðum er reynslumesti glímu- maður á Islandi og hefur unnið mikið starf til eflingar glímunni norðanlands. Arngrímur Jónsson, sem verið hefur að sækja sig að undanförnu, náði sér ekki vel á strik og varð fimmti maður. Hann glímir ágætlega en hefur til þessa skort afgerandi brögð til úrslita. Kolbeinn bróðir Jóhannesar er stór og stæltur, en skortir lipurð og á- kveðni. Hann hlaut aðeins vinning á móti nýliðanum Davíð sem átti litla möguleika gegn jötnunum. Sigur Skarphéðins Heildarstigin voru vitaskuld reiknuð úr keppni beggja kynja og sigruðu Skarphéðinsmenn með 56 stig. Næstir komu Þingeyingar með 42 stig, Aust- firðingar með 5 stig og Strandamenn og Víkverjar hlutu sitt stigið hvor. AIl- ir keppnisaðilar hlutu síðan 2 stig hver fyrir þátttökuna. 26 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.