Skinfaxi - 01.08.1994, Síða 45
HSÞ - harðir í horn:
Skutust upp í 1. deild
- helgina eftir líflegt héraðsmót
Einar Ingi Hermannsson kastaði sleggjunni
lengt á héraðsmótinu.
Konráð Erlendsson sveif léttilega yfir rána í stangarstökkinu.
Frjálsíþróttamenn í HSÞ una glaðir
við sitt þessa dagana. Þeir gerðu góða
ferð til Reykjavíkur á dögunum, þar
sem þeir tóku þátt í bikarkeppni FRI.
Þar náði liðið þeim langþráða árangri
að vinna sig upp úr 2. deild og keppir
því í l. deild að ári.
Helgina fyrir bikarkeppnina hélt
HSÞ héraðsmót í frjálsum íþróttum að
Laugum. Fór mótið vel fram og þátt-
taka var með ágætum. Samhliða hér-
aðsmótinu fór fram aldursflokkamót
HSÞ, svo og sérstök öldungakeppni.
Kepptu öldungamir til stiga á mótinu í
flestum greinum. Fjögur héraðsmet
Feðgarnir Kristján og Ólafur eftir að þeir höfðu lokið við að hlaupa 99. lýðveldishlaupið.
Stefán Jakobsson að koma í mark, en hann
setti þrjú héraðsmet í piltaflokki.
voru sett og átti Stefán Jakobsson, Ei-
lífi, þrjú þeirra. Hann setti héraðsmet í
300, 400 og 1000 m hlaupum í pilta-
flokki. Heiðrún Sigurðardóttir, Bjarma,
setti héraðsmet í þrístökki í telpna-
flokki. Völsungur sigraði stigakeppn-
ina með talsverðum yfirburðum, en í 2.
sætið varð Mývetningur.
Kristján Yngvason og sonur hans,
Olafur, notuðu tækifærið og luku sínu
99. lýðveldishlaupi um leið og þeir
kepptu í 3000 m hlaupinu.
Varð Kristján í 2. sæti í þeim spretti,
þannig að hann steig upp á verðlauna-
pall um leið og hann lauk lýðveldis-
hlaupinu.
Skinfaxi
45