Skinfaxi - 01.08.1996, Side 22
Álltaf gott al hafa pabba mei á
mót þar sem han hefur reynsluna
Það muna allir íslendingar eftir kúluvarparanum „okkar", Hreini
Halldórssyni, sem á sínum tíma vann meðal annars Evrópumeistaratitil í
kúluvarpi. Hreinn er nú hættur í íþróttunum en dóttir hans Lovísa
w
Hreinsdóttir er hins vegar að byrja sinn feril. Lovísa er nú í FRI-2000
hópnum, en hvenær byrjuðu þau í íþróttum?
Hreinn: Ég byrjaði í íþróttum þegar ég
var nítján ára gamall og þá var það í
kúluvarpi, stökkum og svo fiktaði ég við
ýmislegt annað. Það var síðan ekki fyrr
en seinna að einhver alvara var í þessu
og þá varð kúluvarpið ofan á og svo var
kringlan alltaf með.
Þú byrjar semsagt ansi seint?
Hreinn: Ég byrja ansi seint miðað við
það sem þekkist í dag og var aldrei neitt
á þeim stöðum sem íþróttir voru til
staðar. Ég var alltaf uppi í sveit og var
bara í búskapnum og því sem fylgir þar
til ég var plataður í þetta.
Hvenær byrjaðir þú, Lovísa?
Lovísa: Ég byrjaði fimm ára í fimleikum
en ætli ég hafi ekki verið orðin svona sex
eða sjö þegar ég byrjaði í frjálsum?
Hver er ástæðan fyrir því að frjálsar
verða ofan á hjá ykkur báðum?
Hreinn: Hjá mér voru boltaíþróttir ekki
til staðar og aðeins um héraðsmót að
ræða. Það kom fljótlega í ljós að mér
hentaði ágætlega að kasta kúlunni en t.d.
kom knattspyrna aldrei til greina þar
sem ég kynntist henni aldrei.
Lovísa: Ég var nú eitthvað í körfubolta
en ég veit nú ekki af hverju frjálsar urðu
fyrir valinu. Helga Alfreðsdóttir var að
þjálfa hérna á þessum tíma...
Hreinn: Hún var mjög áhugasamur
þjálfari og mjög góð. Hún ýtti á eftir
krökkunum til þess að æfa og við það
fengu þeir meiri áhuga.
Hvenær ferð þú að gera þér grein fyrir
því að þú ert kúluvarpari á
heimsmælikvarða?
Hreinn: Það varð nú ekki fyrr en seinna
að ég sé þann möguleika opnast.
Raunverulega ekki fyrr en 1971, þegar ég
er 22 ára gamall, eftir Landsmótið á
Sauðárkróki sem ég sé að það er einhver
möguleiki. Ég æfði sæmilega fyrir það
mót en gekk nú frekar illa en náði svo
árangri seinna urn sumarið og sá þá að ef
ég myndi halda áfram gæti ég kannski
náð langt. Það er svo árið 1974 að ég sé
fyrir alvöru að það var möguleiki að ná
langt.
Er gott að hafa Hrein Halldórsson fyrir
pabba, getur hann leiðbeint þér í því
sem þú ert að gera?
Lovísa: Alltaf gott að hafa hann með á
mót og annað þess háttar þar sem hann
hefur reynsluna og þekkinguna.
Ert þú eitthvað farin að einblína á
einhverja sérstaka grein?
Lovísa: Ég er farin að leggja aðeins meiri
áherslu á grindahlaupið.
Hreinn: Hún er í FRÍ2000 hópnum og
þá útaf grindahlaupi.
Hvernig er staðan í FRÍ2000 hópnum í
dag?
Lovísa: Þráinn er hættur og ég veitt ekki
hvort Ragnheiður ætlar að halda áfram.
Það virðist vanta einhverja peninga til að
halda þessu gangandi og vonandi verður
haldið vel utan um þetta fram að
leikunum í Sydney.
Nú settir þú íslandsmet í kúluvarpi á
sínum tíma og settir þú ekki líka nýtt
Evrópumet?
Hreinn: Ég setti nú ekki Evrópumet en
ég vann hins vegar Evrópumót. Pétur
Guðmundsson er svo búinn að taka af
mér íslandsmetið en ég kastaði 21,09 en
hann fór í 21,26. Síðan tók hann af mér
innanhússmetið líka svo ég er allslaus í
dag sem er reyndar ágætt.
Ert þú farin að feta í fótspor pabba og
setja einhver met?
Lovísa: Ég á Austurlandsmet í grindinni
og í þrístökki án atrennu.
Er einhver grein sem þú heldur að
Lovísa eigi mesta framtíð fyrir sér í?
Hreinn: í dag sé ég ekki alveg fyrir mér
hver greinin verður en ég held að það
verði styttri vegalengdarhlaupin og
stökkin sem koma tií greina. Það á hins
vegar eftir að renna mikið vatn til sjávar
22
Skinfaxi
UMFÍ