Skinfaxi - 01.08.1996, Page 40
Vignir Örn Pálsson
brenna eins og til dæmis áldósis.
Eigendum þeirra var bent á að áldósir
Stœrsta verkefnié í jtessum
málum er ad breyta
bugarfari fólks gagnvart
umgengni viÓ náttúruna
Hvar er ruslafatan? Hver kom með
allt þetta rusl? Af hverju tæmir engin
ruslatunnuna? Eflaust eru þetta
spurningar sem flest okkar hafa heyrt og
það oftar en einu sinni. Er nútíma-
þjóðfélagið að sökkva í einhverja
ruslakistu? Tilheyrir það nútímaþjóð-
félaginu að einhver félagasamtök verða á
hverju ári að standa fyrir átaki gegn
ruslinu, skipuleggja hreinsunarflokka til
að hreinsa upp drasl sem einhver hefur
hent eða skilið eftir úti í náttúrunni.
UMFÍ hefur staðið fyrir slíku átaki bæði í
fyrra og nú í ár með ágætum árangri.
Ungmennafélagar víða um land hafa
reynt að leggja sitt af mörkum til að
Island verði áfram hreint og fagurt land.
Því fleiri sem taka þátt í slíkum átaki á
einhvern hátt því betra. Þá skapast meiri
umræða úti í þjóðfélaginu og vonandi fer
fólk að hugsa sinn gang. Af hverju þarf
að hreinsa þetta svæði? Við hreinsuðum
það í fyrra. Stærsta verkefnið í þessum
málum er að breyta hugarfari fólks
gagnvart umgengni við náttúruna, margt
smátt getur gert eitt stórt, það er ekki í
lagi að henda rusli frá sér bara einhvers
staðar þó það sé bara lítið plast eða
bréfsnifsi. Fólk verður að skilja að
umhverfið er í okkar höndum.
Ferðamönnum fylgir ýmislegt drasl
Ég á heima á
Grund rétt
sunnan við
Hólmavík í
Strandasýslu.
Þessari jörð
tilheyrir nokkuð
löng strandlengja
sem liggur fyrir
opnum Húna-
flóanum. Miklum
tíma hefur oft
þurft að fórna til
að hreinsa
fjörurnar á vorin
eftir norðaustan-
storma. Ég
ferðaðist um Hornstrandir í sumar
fótgangandi með bakpoka í fjölmennum
gönguhóp. Þetta svæði þarna norðurfrá
er einstök náttúruparadís.
Ferðamanninum fylgir ýmislegt dót og
drasl og þegar haldið er af stað á
hverjum morgni höfðu safnast upp
tómar umbúðir undan matvöru og fleiru
sem fólk vildi ekki bera með sér lengur.
Ruslinu var safnað saman í fjöruna og
það brennt. Það voru reyndar
ótrúlegustu hlutir sem fólk ætlaði að
brynnu ekki vel, þá kom svarið, það er
allt í lagi sjórinn tekur þær bara. Ég varð
fyrir svörum og benti á að hugsanlega
skilaði sjórinn dósunum aftur á land á
fjörurnar heima hjá mér eða einhvers
staðar annars staðar. Þetta atvik olli því
að ég fór að hugsa um það hvort enn
þann dag í dag væri til fullt að fólki sem
héldi að sjórinn tæki allt ruslið sem hent
væri í hann og losaði okkur við það fyrir
fullt og allt. Það er líklega stór hákarl í
sjónum sem gleypir allt ruslið og ropar
Sumstaóar er islensk náttúra ósnert og hreint ótrúlega falleg á meöan aörir staöir láta verulega á sjá eftir slœma umgengni okkar.
40
Skinfaxi
UMFÍ