Skinfaxi - 01.08.1996, Side 46
Kristján Kristjá
Síðasta orðið
--------------------
Iþróttaskóli
I
Miklar breytingar hafa orðið í skólamálum hér á landi hin
síðustu ár. Þar ber helst að nefna yfirfærslu grunnskólans til
sveitarfélaga og þá markvissu vinnu skólayfirvalda að skólar
verði einsetnir.
Með einsetningu eru yngstu
nemendurnir mun fyrr búnir á daginn,
þannig að sums staðar hefur verið boðið
upp á heilsdagsskóla þar sem
nemendum gefst kostur á að taka þátt í
fjölbreyttu tómstundastarfi eftir að
hefðbundinni kennslu lýkur.
Þarna er sóknarfæri fyrir okkur
ungmennafélaga. Þann 1. september sl.
tók til starfa nýr íþróttaskóli Völsungs á
Húsavík. Þar er gerð tilraun með alhliða
íþróttaþjálfun yngstu grunn-
skólabarnanna en dregið úr sérhæfingu
eftir greinum og keppnishörku. Með
þessu vonast aðstandendur skólans eftir
að börnin fái betra íþróttauppeldi og
mun minna brottfall verði úr íþróttunum.
Iþróttaskólinn er starfræktur í samvinnu við Borgarhólskóla
og Tónlistarskóla Húsavíkur og er felldur að stundatöflu
barnanna í grunnskólanum. Stjórn Völsungs ákvað að stofna
íþróttaskóla í kjölfar ákvörðunar urn einsetningu
Borgarhólsskóla. Með þessu móti getur félagið byrjað starfsemi
sína mun fyrr á daginn en áður, sérstaklega fyrir yngri
nemendurna, og fækkað tímum síðdegis og um helgar. Má því
segja að þarna sé á ferðinni fjölskylduvæn starfsemi.
í íþróttaskóla Völsungs er börnunum ekki skipt upp milli
íþróttagreina, heldur er öllum boðið upp á grunnþjálfun í
hinum ýmsu greinum. Ahersla er lögð á alhliða líkams- og
hreyfiþroska og félagslega gott umhverfi. Forstöðumaður
skólans er Guðrún Kristinsdóttir íþróttakennari en hún hefur
einnig starfrækt nokkurs konar hreyfiskóla fyrir yngstu börnin í
samstarfi við leikskólann á Húsavík.
Þá hefur Breiðablik í Kópavogi einnig starfrækt íþróttaskóla
frá því 1994 fyrir börn á aldrinum 3-6 ára undir handleiðslu
Antons Bjarnasonar íþróttakennara og er hann jafnframt
skólastjóri. Um 100 börn hafa stundað nám við skólann yfir
vetrartímann og eiga þau kost á að mæta tvisvar í viku.
Foreldrar geta notað tækifærið og farið í aerobic eða tækin
undir leiðsögn þjálfara meðan þeir bíða eftir börnum sínum.
Þar sem börnin eru ung að aldri er ekki hægt að vera með
svokallaða stöðvaþjálfun heldur hringþjálfun með fjölbreyttum
hreyfingum. Þau klifra í rimlum, ganga, hlaupa og stökkva, eru
stanslaust að allan tímann. Anton segir að mikil og holl
hreyfing sé lykill að velferð barnsins og hreyfifærnina segir
hann undirstöðu grunnskólaverunnar.
Þegar börn hafa frá unga aldri alist upp við íþróttir þá halda
þau áfram þeim lífsstíl. Það verður fróðlegt að fylgjast með
starfsemi þessara íþróttaskóla og vil ég nota tækifærið hér og
hvetja forsvarsmenn íþrótta- og ungmennafélaga svo og
skólayfirvöld að kanna hvort þetta ekki einmitt það sem hentar
í þeirra heimabyggð.
Með ungmennafélogskveðju
Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir
UMFÍ
Skinfaxi