Skinfaxi - 01.04.2001, Page 16
Efnilegir íþróttamenn á Landsmóti - Ólafur Sigfús Björnsson ÚÍA
Ungir og efnilegir íþróttamenn eiga eftir að
láta mikið af sér kveða á Landsmótinu enda
eiga ungmennafélögin mikið af hæfileika-
ríku fólki sem getur náð langt í sinni íþrótta-
grein. Heimamenn í ÚÍA eiga að sjálfsögðu
sína fulltrúa og í þeim hópi er m.a. Ólafur
Sigfús Björnsson hlaupari. Þá eiga Blikarn-
ir unga og bráðefnilega frjálsíþróttakonu,
Sigurbjörgu Ólafsdóttur sem getur náð
langt á mótinu og sömu sögu er að segja af
hinum unga Jóni Oddi Sigurðssyni sem
keppir fyrir Njarðvík í sundinu. Skinfaxi
fékk þetta ágæta íþróttafólk í stutt spjall.
Stefnir á verðlaunapall
Árið 1998 var stofnaður úrvalshópur ÚÍA í frjálsum
íþróttum þar sem ungir og efnilegir frjálsíþróttamenn af
Austurlandi voru valdir til að undirbúa sig sem best
fyrir Landsmótið. Einn úr þessum hópi er Ólafur Sigfús
Björnsson, 19 ára nemi við Menntaskólann á Egils-
stöðum. Gunnar Guðmundsson hitti kappann.
Olafur bió fyrstu átta ár æfinnar á takamarkað. Eg meiddist aðeins í vetur og
Seyðisfiröi áður enn hann fluttist til
Egilsstaöa. Hann hefur komið víöa við í
íþróttaiðkun sinni m.a. stundað hand-
bolta, skíöi, körfubolta og knattspyrnu.
Hann segir systur sína hafa dregiö sig
út í frjálsar á sínum tíma og í dag
einbeitir hann sér eingöngu að frjálsum
íþróttum. Ólafur hefur verið aö skipa sér
í fremstu röð meöal 800 metra hlaupara
á landinu og hefur nú í annað sinn verið
valinn í úrvalshópi FRÍ 2000.
í hvaöa greinum keppir þú á
Landsmótinu?
..Ég keppi í 800 metra hlaupi sem er mín
aðalgrein og líklega í 400 metra hlaupi en
við eigum eftir að sjá til með það".“
Ert þú búinn að setja þér einhver
markmiö fyrir mótiö?
,,Ég stefni að því að komast á
verðlaunapall á mótinu og vonast einnig til
þess að geta hlaupið á tveimur mínútum
sléttum í áttahundruð metrunum."
Hvernig kemur þú undirbúinn fyrir
mótiö - hefur þú æft vel í vetur?
,,Það er nú reyndar búið að vera svolítið
16
var einnig slappur í æfingaferð sem við
fórum í til Spánar í vetur. En ég er orðinn
mjög góður núna og kominn á fullt.“
Hverjir veröa þínir helstu keppinautar?
,,Þá sem ég tel helsta fyrir Landsmótið eru
nokkrir keppendur frá UMSS. Annars hafa
þetta helst verið keppinautar frá Reykjavík
en þau fá ekki að keppa á Landsmótinu."
Hefur þú áður keppt á Landsmóti?
,,Já, þetta verður þriðja Landsmótið sem
ég keppi á í sumar. Á fyrsta Landsmótinu
mínu á Laugarvatni 1994 keppti ég reyndar
bara í sýningargrein og var þá tólf ára
gamall. Síðan keppti ég í Borgarnesi 1997."
Hvað er eftirminnilegast frá þessum
mótum? ,,Á fyrsta mótinu mínu á
Laugarvatni var ég nú lítið farinn að ná
einhverjum árangri en lenti samt í fimmta
sæti að mig minnir í því hlaupi sem ég tók
þátt í. Á síðasta móti tel ég mig hafa náð
góðum árangri sem yngsti keppandinn. Ég
lenti í tólfta sæti í 800 metra hlaupinu sem
er svona í miðjum hóp keppenda og hljóp
auk þess á ágætis tíma."
Hvernig er andinn í ÚÍA hópnum?
„Hann er mjög góður enda er búið að vera
þjappa liðinu saman. Það er reyndar ekki
erfitt að skapa stemmningu fyrir Landsmót
og hvað þá þegar maður er á heimavelli.
Úrvalshópur ÚÍA hefur verið starfandi í tvö
til þrjú ár og á þessum tíma hefur hópurinn
verið að kynnast æ betur. Þetta er
sennilega stærsti og elsti hópurinn sem
hefur verið hjá ÚÍA í mörg ár þó að við
séum ekki orðinn mjög gömul. Ég er
sennilega elstur. Já ég tel hópinn bara orðin
nokkuð góðan saman. Við þekkjumst betur
og erum flest orðin góðir vinir".
Hefur það verið hvatning fyrir ykkur að
fá Landsmótið hingað?
,,Já það er búið að vera helsta markmiðið
hjá öllum í hópnum að undirbúa sig fyrir
þetta mót.“
Er kominn spenningur og tilhlökkun i
þig?
,,Já, ég er búinn að vera að undirbúa mig
betur núna að undanförnu og eins í vetur.
Núna síðasta mánuðinn tek ég vel á og
passa vel upp á aðra hluti eins og
mataræðið til að koma sem best undirbúinn
fyrir mótið."
Hefur þú sett stefnuna á eitthvað
ákveðiö í framtíðinni hvað varðar
íþróttir?
,,Nei, ekki neitt. Ég veit ekki hvernig þetta
verður eftir
Landsmót en
vona að ég geti
haldið áfram.“ í//i*æ/
J