Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 8
Arnór Benónýsson, formaður HSÞ:
„Mótin viðburður m fólh
ðd fyrirtœhi vilja tengjdsf
9.UNGLINGA
LANDSMDT
UMFÍ
Glæsileg sundlaug var tekin í notkun á Laugum í sumar.
Unglingalandsmót UMFÍ, sem fram fer að
Laugum í Reykjadal um verslunarmannahelgina 2006,
snertir tugi þúsunda Islendinga á einn eða annan hátt. Það eru
forráðamenn og stjórnendur héraðssambanda UMFI,
félaga og deilda innan héraðssambandanna, i'þrótta-
bandalög og félagar þeirra og deildin þátttakendurnir
sjálfir foreldrar þeirra, systkini og aðrir fjölskyldumeð-
limir og ættingjan
Unglingalandsmótið er núna haldið í níunda skipti frá
árinu 1992, en þá var það haldið á Dalvík 10 -12. júlí. Árið
2000 var gerð stór og mikil áherslubreyting á mótinu, en þá var
það í fyrsta skipti haldið um verslunarmannahelgina. Þeirri
breytingu hefur verið mjög vel tekið af landsmönnum. Næsta
sumar verður unglingalandsmótið haldið að Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu, verslunarmannahelgina 4.-6. ágúst. Fram-
kvæmdaraðili mótsins er Héraðssamband Suður-Þingeyinga.
Frá upphafi unglingalandsmóta, frá því að vera nánast ein-
göngu íþróttakeppni fyrir aðildarfélög UMFI, hefur unglingalands-
mótið þróast út í að vera ein stærsta skipulagða fjölskylduhátíð-
in sem haldin er um verslunarmannahelgina á hverju ári. I dag
geta öll börn og unglingar á aldrinum 11-18 ára, frá öllum
íþróttafélögum á landinu, tekið virkan þátt í unglingalandsmót-
um UMFÍ.
Það er markmið þeirra sem að mótinu standa að viðhalda
þeirri virðingu og þeim áhuga sem þessi viðburður hefur fengið
í hjörtum margra landsmanna. Foreldrar eru farnir að sjá þá
mörgu jákvæðu möguleika sem mótið hefur upp á að bjóða.
Fjölskyldan getur farið áhyggjulaust í umhverfi sem er uppbyggj-
andi fyrir börnin og unglingana, þar sem eftirvænting, gleði og
vinátta keppenda skín úr andlitum þeirra.Tilgangur UMFÍ með
unglingalandsmótunum er að skapa umhverfi fyrir alla fjölskyldu-
meðlimi þannig að þeir séu þátttakendur hver á sinn hátt.
Arnór Benónýsson, formaður HSÞ og sem einnig á sæti í
framkvæmdanefnd mótsins, segir að undirbúningur fyrir Ungl-
ingalandsmótið gangi afar vel og samkvæmt áætlun. Búið er að
ganga frá grunni fyrir vallarhús og frjálsíþróttavöllurinn verður
alveg endurnýjaður og lagt á hann gerviefni. Arnór segir að
framkvæmdir nái hámarki með hækkandi sól í vor Ný og glæsi-
leg sundlaug var tekin í notkun sl. sumar og gott íþróttahús er
þegar til staðar
„Þegar öllum undirbúningi verður lokið verður aðstaðan hér á
Laugum fýrsta flokks á ekki stærri stað. Það er hlakkað mikið til
landsmótsins og það fer vaxandi eftir því sem nær dregur. Laugar
hafa upþ allt á að bjóða og það verður gaman að sjá mótið í þess-
ari nálægð því að svæðið er ekkl stórt miðað við mót sem hafa
verið haldin í bæjum. Allt verður samþjappaðra en plássið er yfirdrifið
og við erum alveg tilbúnir að taka á móti 20 þúsund manns ef út í
það er farið," segir Arnór Benónýsson, formaður HSÞ.
Hvað snertir framkvæmd mótsins, þá er búið að ráða
sérgreinastjóra og segir Arnór framkvæmdina að öðru
leyti eins langt komna og hægt er á þessum tíma árs.
Samningar við styrktaraðila eru í gangi og miðar vel og
ágætis útlit í þeim efnum.
„Það er alveg greinilegt að unglingalandsmótin eru
atburður sem fólk og fýrirtæki vilja gjarnan teng/ast. Maður finnur
fýrir mikilli stemmningu og það er bullandi tilhlökkun. Einhvern tíma
fer snjórinn og þá geta framkvæmdir hafist af fullri alvöru," sagði
Arnór Benónýsson, formaður HSÞ, að lokum.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands