Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 17
Á aðalfundi Islenskra getrauna á Nordica
Hotel í Reykjavík, 21. október sl., kom fram
að afkoman hefur aldrei verið betri en á
árinu 2004. Sala á getraunum og í Lengj-
unni fór í fyrsta sinn yfir 500 milljónir
á einu ári og varð alls 517 milljónir Áheit
og sölulaun til i'þróttafélaga sem selja
getraunir og til héraðssambanda á árinu
2004 voru 67 milljónir
Starfsemi Islenskra getrauna miðar ekki að því að fyrir-
tækið safni sjóðum, utan eðlilegs varasjóðs, heldur er mark-
mið fyrirtækisins að skila hagnaðinum út til íþróttahreyfmgar-
innan A aðalfundinum voru sölufélögum afhentar alls 15,5
milljónir króna í aukaáheitum. Ekki fengu öll félögin sömu
upphæðina, heldur var úthlutað til félaga eftir söluárangri
þeirra á árinu 2004. Þau félög sem selja mest fá hæstu upp-
hæðirnar og fer upphæðin svo lækkandi eftir minnkandi sölu.
Hinn þekkti íþróttafréttamaður Bjarni Felixson var sér-
staklega heiðraður fyrir starf sitt í þágu getrauna.
„Eg fæ þessa viðurkenningu vegna starfa minna í gamla
daga þegar KR hóf rekstur getrauna sem Islenskar getraunir
Bjarni Felixson og Guðbrandur Stígur Ágústsson (KR) taka við
viðurkenningum fyrir starf í þágu getrauna.
yfirtóku síðan. Það er heiður að taka við þessari viðurkenningu.
Ég hef alla tíð tiþþað en markmiðið hefur aldrei verið að vinna
heldur bara að vera með.”
Við sama tækifæri var Guðbrandur Stígur Agústsson sér-
staklega heiðraður en hann hefur stýrt getraunasölunni hjá
KR sl. sex ár með mjög góðum árangri.
SKINFAXI - gefið út samfleytt síðan 1909 |J