Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 19
r r f t
Lára Oskarsdóttir um Felix, félagakerfi UMFI og ISI:
Mjög ögrandi 09
spennandi verhefni
I Felix, félagakerfi UMFI og ISI, er hægt að skrá og vinna með
upplýsingar um félagsmenn, iðkendur og aðra sem koma að
starfsemi i'þrótta- og ungmennafélaga. Hægt er að búa til
hinar ýmsu skýrslur, vinna með starfsskýrslur og tölfræði, út-
búa kladda og halda utan um viðburði í dagatali. I álagningar-
hlutanum er hægt að leggja á félags- og æfingagjöld og þá
geta aðildarfélög fengið uppsetta heimasíðu tengda kerfinu.
Boðið er upp á námskeið fyrir íþrótta- og ungmennafélags-
hreyfinguna. Kynningarstjóri kerfisins er Lára Oskarsdóttir.
Lára kom að þessu verkefni fyrir röskum tveimur árum
og þá var það prófað með ákveðnum félögum sem treystu
sér til að vera með í byrjun. Hún segir meginmarkmiðið
með kerfinu vera að láta félögunum í té gott rekstrartæki, þá
sérstaklega í sambandi við skráningar á iðkendum. Það var
víða sem félögin höfðu ekki fjármagn til að standa undir
þessum málum, þannig að félagskerfið sem var til fyrir; var
bundið við tölvu hvers félags, var hreinlega orðið úrelt, barns
síns tfma. Lára segir að markmiðið með kerfinu hafi verið að
allir þeir sem hefðu aðgang að því fengju alltaf nýjustu upp-
lýsingarnar.
- Hvernig hafa félögin nýtt sér þessa þjónustu eða hag-
ræðingu?
„Miðað við það að þetta er nýtt kerfi finnst mér að það
hafi gengið vonum framarVið eigum að vera þakklát fyrir öll
þau félög sem hafa viljað vera með og það hefur verið gríð-
arlega góð þátttaka á þeim stöðum sem ég verið að fara til
og kynna þetta kerfi, nú síðast á Akureyri,” sagði Lára.
- Hvað með aðra möguleika sem kerfið býður upp á?
„Þegar búið er að halda skráningunni vel til haga er hægt
að þróa kerfið enn frekar Svo dæmi sé tekið, þá er hægt að
setja aðgang fyrir þjálfara, þeir vinna með skráningarnar
þannig að þær eru komnar úr höndum skrifstofunnar Þjálfar-
ar geta líka skráð inn mætingar og notað þær síðan ítölfræði
sem kerfið reiknar allt út. Þetta er ekki sambærilegt við vinn-
una í Exel sem menn voru að vinna í áður Það eru flest
félög farin að vinna með Felix-kerfið en önnur munu koma
inn með tíð og tíma. Kerfið sem slíkt er í stöðugri endur-
skoðun og við setjumst niður 2-3 sinnum í viku til að skoða
hvað betur má fara og á hvaða sviðum við gætum bætt
okkurVið getum sagt að við séum að byggja stórt og í dag
erum við kannski komin upp á fyrstu hæðina," sagði Lára.
Margir vilja meina að Felix-kerfið hafi verið bylting þegar
það var tekið í notkun á si'num tíma. Kerfið er íslensk smíði
og frá upphafi hefur það verið markmið að hafa það eins
notendavænt og kostur er Svipuð kerfi hafa lengi verið í
notkun á hinurm Norðurlöndunum.
Að sögn Láru er KSI með mjög öflugt kerfi sem Felix er
að tengjast. Að mati Láru verða knattspyrnudeildir að skrá í
gegnum Felix því að öll félagaskipti verða að vera lögleg í
gegnum KSI. „Núna lesa þessi tvö kerfi saman,” segir Lára.
- Það hlýtur að vera spennandi að koma að uppbyggingu
og þróun þessa kerfis?
„Það hefur verið mjög ögrandi og spennandi verkefni,
stundum blæs á móti eins og gengur en að öllu samanlögðu
hefur þetta gengið vel," sagði Lára Óskarsdóttir að lokum.
ngmenna- og tómstundabúðirnar
að Laugum í Dalasýslu hafa
vakið verðskulduga athygli
Búðirnar eru fyrir nemendur í 9. bekkjum grunnskólanna
sem dvelja þar frá mánudegi til föstudags viö leik og
störf. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
434-1600 og 861-2660. Einnig þjónustumiðstöð UMFÍ
í síma 568-2929 eða á www.umfi.is.