Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 20
Anna R. Möller, formaður NSU:
Hef óhemju
gaman af að
vínna með fólkí
UMFI er í samtökum ungmenna-
félaga á Norðurlöndunum
„Nordisk samorganisation for
ungdomsarbejde - NSU”. Á
þeim vettvangi er unnið mikið
af sameiginlegum verkefnum sem
tengja Norðurlöndin saman. Þar
má nefna ungmennaskipti, ung-
mennavikun markmiðsráðstefnur
og ungbændaráðstefnun
Anna R. Möller, stjórnarmaður
í UMFI, er formaður NSU. Hún
er jafnframt framkvæmdastjóri
Fimleikasambands Islands.
Anna segir að samtökin séu regnhlífarsamtök sem starfi
með ungu fólki á Norðurlöndum. 17 samtök innan þessara
vébanda vinna öll með ungu fólki og hafa íþróttin menningu
og umhverfi á sínum snærum með svipuðum hætti og UMFI,
DGI í Danmörku og SDU-samtökin í Suður-Slésvik í Þýska-
landi. Síðan koma að samtökunum mjög öflugir aðilar í
Noregi og Svi'þjóð. ,,Það má því segja með sanni að þessi
samtök vinni á mjög breiðu sviði í starfi fyrir ungt fólk,“ segir
Anna R. Möllen formaður NSU. Höfuðstöðvar samtakanna
eru í Kaupmannahöfn og þar er einn starfsmaður í hálfu
starfi. Anna segir að haustið 2004 hafi orðið breyting þegar
framkvæmdastjórinn tók til starfa í Kaupmannahöfn en áður
var starfsemin rekin frá Islandi. Þá varValdimar Gunnarsson
að hluta til í starfi sem framkvæmdastjóri NSU. Anna segir
að gerður hafi verið samningur við DGI og ISCA um að
flytja skrifstofuna til Kaupmannahafnar til að hún mætti vera
nær öllu starfinu. I dag er starfsmaðurinn þar í 50% starfi og
vinnur sfðan í öðru eins starfshlutfalli hjá ISCA.
,,Þetta form hefur gengið í alla staði mjög vel og mikill
munur að hafa starfsmann í þetta miklu starfi. Eftir stjórnar-
fund, sem haldinn var í september sl., var mikill hugur í
vactavis hagur í heilsu Qsso)
<*h G GOLFKLÚBBUR REYKJAVlKUR
REYKJAVIK GOLF CLUB
ÍSIAK rm
I SECURITAS |
1 1 L i
Jói útherji knattspyrnuverslun ** skOgrækt RIKISINS