Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2006, Side 5

Skinfaxi - 01.05.2006, Side 5
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ Gaman saman Hve oft hefur fjölskyldan tíma til að hafa það gaman saman? Mikilvægt er að við getum gert skemmtilega hluti saman. Það hefur tekist að hafa umgjörð Unglingalandsmótanna lifandi og áhugaverða fyrir alla aldurshópa. Heilbrigður keppnisandi, glæsileg íþróttahátíð, tjaldbúðastemning og flottar kvöldskemmt- anir hafa gert þetta að verkum. Með dreifingu mótanna um land allt kynnumst við landinu betur og fleiri staðir fá tækifæri til að kynna sig. Stórhugur Þingeyinga - glæsilegur mótsstaður Stór þáttur í að gera Unglingalandsmót að mótum mótanna er stórhugur heimamanna. Þingeyingar eiga hrós skilið fyrir að gera Laugar að glæsilegum mótsstað. Samhent forysta ungmennafél- aganna og sveitarstjórnarmanna, ásamt dyggum stuðningi þing- manna og öflugra fyrirtækja, hefur lyft grettistaki á örskömmum tíma og nú eru Laugar með íþróttaaðstöðu ofarlega á landsmæli- kvarða. Ágætu keppendur: verum minnug þess að stærsti sigurinn er að vera með og taka þátt í drengilegri keppni. En við eigum að sjálfsögðu að setja markið hátt og stefna að góðum sigrum. Sá sem sigrar og vinnur til verðlauna þarf að muna eftir að þakka andstæðingum sínum fyrir keppnina. Hvað er góður sigur án verðugs andstæðings í keppni? Að lokum vil ég þakka sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og öll- um íbúum sveitarinnar fyrir dugnað og metnað að gera Unglingl- ingalandsmót UMFÍ að glæsilegu fjölskyldumóti. Einnig öllum þeim aðilum sem lögðu sitt á vogarskálarnar. Keppendur og gestir, stefnum að því að njóta daganna sem við eigum fram undan á Laugum. Samstarfsverkefni UMFÍ og Glímusambandsins: Glímuflokkur íslands stofnaður Glímuflokkur (slands fór í sýn- ingarferð til Danmerkurog Svíþjóðar í júní sl. Áður en flokk- urinn hélt utan var hann með frumsýningu í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsinu 23. júni. Úhætt er að segja að sýningin hafi vakið verðskuldaða athygli og frammi-staða glímuflokksins vareinstaklega góð. Glímuflokkur (slands er sam- starfsverkefni Glímusambands (siands og Ungmennafélags fslands. Verkefnið á sér nokkura ára aðdraganda en með myndar- legum styrk frá Pokasjóði var unnt að ýta því úr vör. Markmið flokksins er að halda merki glímunnar á lofti og bjóða upp á frumlegar og vand- aðar glímusýningar, jafnt innan lands sem utan. Flokkurinn stefn- ir að því að frumsýna nýja sýn- ingu ár hvert. (utanferð flokks- ins að þessu sinni var hann með sýningu á danska landsmótinu sem haldið var í bænum Haderslev á Jótlandi 29. júní- 1. júlí sl. Sýningarferðin er í sam- vinnu við Kultur Fonden og er liður í að kynna glímuna erlendis. Glíman er i stöðugri sókn í Norður-Evrópu og hefur iðkend- um þar fjölgað á síðustu árum. (þróttin er nú stunduð I Svíþjóð, Danmörku og Hollandi en auk þess er vaxandi áhugi fyrir glímu í Þýskalandi. (haust verður brotið blað í sögu glímunnar þegar lceland Open fer fram í fyrsta sinn en þar munu erlendir sem fslenskir glímumenn etja kappi saman. Glímuflokkur (slands mun bjóða upp á misfjölmennar sýn- ingar, allt frá þremur til níu manna. Auk þess verða þær sýndar á því tungumáli sem áhorfendur kjósa hverju sinni. Þeim sem áhuga hafa á að fá flokkinn til að haida sýningu er bent á að hafa samband við Glímusamband Islands eða Ungmennafélag íslands. Við upphaf sýningar Glímu- flokks Islands í Listasafni Reykjavíkurí Hafnarhúsinu. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.