Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 34
Friðrika Björk lllugadóttir verkefnisstjóri:
Ég er orðin
spennt
Verkefnisstjóri Unglingalandsmótsins í ár,
sem haldið verður á Laugum, er Friðrika Björk
lllugadóttir. Undirbúningur fyrir mótið hefur
staðið yfir í allnokkurn tíma og enn-fremur
allt kynningarstarf. Á vormánuðum var Friðri-
ka einmitt í þeim erindagjörðum á höfuðbor-
garsvæðinu og dreifði kynningarbæklingi
sem gerður hefur verið um Unglingalands-
mótið á Laugum.
Þess má geta að bæklingar liggja frammi á sundstöð-
um og hjá íþróttafélögum. Einnig er hægt að nálgast bækl-
inginn í þjónustumiðstöð UMFÍ í Fellsmúla 26.
„Ég hef fengið geysilega góð viðbrögð frá félögum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Það er mikill áhugi hjá þeim að
senda hópa í knattspyrnu, körfubolta, frjálsum og sundi á
mótið á Laugum. Þessi jákvæðu viðbrögð ýta undir mikla
bjartsýni,"sagði Friðrika Björg í samtali við heimasíðu Ung-
mennafélags íslands. Friðrika sagði ennfremur að töluvert
væri hringt inn á skrifstofuna á Laugum og félög vítt og
breitt um landið væru að afla upplýsinga varðandi mótið
sjálft og eins um skráningu á mótið sem nú stendur yfir af
fullum krafti.
Unglingalandsmótið í ár er haldið í 9. skipti frá árinu
1992, en þá var það haldið á Dalvík. Árið 2000 var gerð
áherslubreyting á Unglingalandsmótinu, en þá var mótið
í fyrsta skipti haldið um verslunarmannahelgina. Þeirri
breytingu hefur verið mjög vel tekið af landsmönnum.
Frá upphafi Unglingalandsmóta, frá því að vera nánast
eingöngu íþróttakeppni fyrir aðildarfélög UMFÍ, hefur
Unglingalandsmótið þróast út í að vera ein stærsta skipu-
lagða fjölskylduhátíðin sem haldin er um verslunarmanna-
helgina á hverju ári.
Öll börn og unglingará aldrinum 11-18 ára geta tekið
virkan þátt í unglingalandsmóti UMFÍ 2006.
„Það er í mörg horn að líta í þessu starfi sem er umfram
allt fjölbreytilegt og spennandi. Ég er mjög bjartsýn á að
hér verði haldið gott unglingalandsmót. Hér er allt til alls
og ég hlakka mikið til mótsins/'sagði Friðrika.
Afþreying fyrir yngstu gestina
Á 9. Unglingalandsmóti UMFÍ á Laugum verður hei-
Imikið gert fyrir þau börn sem hafa ekki náð aldri til
að taka þátt í keppni á mótinu. M.a. verður boðið upp
á glæsileg leiktæki, hoppikastala, rennibraut o.fl. sem
verður sett upp á svæðinu.
Hægt verður að kíkja á teiknimyndir í bíóhúsinu á
svæðinu og svo verður sérstakt íþróttamót fyrir börnin.
Yngstu gestimir þurfa ekkert að borga fyrir þetta, hvorki
leiktækin né aðra afþreyingu.
i
34 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands