Skinfaxi - 01.05.2006, Síða 36
Baldur Daníelsson, formaður Unglingalandsmótsnefndar:
Gaman verður að sjá
dalinn fullan af fólki
Baldur Daníelsson er formaður Unglinga-
landsmótsnefndar fyrir Unglingalandsmót
UMFÍ á Laugum 2006, en í aðalstarfi er
hann skólastjóri Litlulaugaskóla í Reykjadal
í Þingeyjarsýslu. Rætur hans liggja í Kópa-
voginum og þar byrjaði hann að starfa
innan ungmennafélagshreyfingarinnar, hjá
Breiðabliki. Eftir það var hann formaður
ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi
og Geisla í Súðavík. Baldur var í framhalds-
námi í Þrándheimi í Noregi þegar starf
skólastjóra við Litlulaugaskóla var auglýst
og þau hjónin ákváðu að slá til. Áður höfðu
þau búið um nokkurra ára skeið á Blöndu-
ósi og fannst tími til kominn að víkka sjón-
deildarhringinn eins og Baldur komst sjálf-
ur að orði. Nú eru árin orðin fjögur á Laug-
um og þau eru mjög ánægð með lífið á
þeim slóðum.
Það lá beinast við að sþyrja Baldur
hvernig það hefði atvikast að hann varð
formaður unglingalandsmótnefndar.
„Það kom beiðni frá HSÞ um að ég
leiddi þetta verkefni ásamt hópi af mjög
góðu fólki. Þetta er búið að vera virkilega
góður og skemmtilegur tími en hópur
fólks, sem unnið hefur þessa vinnu, hefur
haft fulla trú á verkefninu frá fýrsta degi.
Það hafa varla svo heitið geti komið upp
vandamál og yfirmenn sveitarfélagsins
hafa lagst á eitt að gera aðstöðuna sem
glæsilegasta."
Baldur sagði undirbúning fyrir ungl-
ingalandsmótin vera orðinn nokkuð fast-
mótaðan sem stafar af því að menn nota
sér þekkingu og reynslu Ómars Braga
Stefánssonar framkvæmdastjóra frá ári til
árs, þannig að ekki þarf að finna upp hjólið
íöllu.
„Fyrir vikið hefur undirbúningur fyrir
framkvæmdina í raun og veru gengið með
auðveldari og fljótari hætti en ég átti von á
í upphafi. Það er Ijóst að margir styrktar-
aðilar mótsins hafa sóst eftir því að tengj-
ast því með einhverjum hætti og eru þar
af leiðandi með ár eftir ár. Það í sjálfu sér
auðveldar allt ferlið og vinnuna. Það er
hreinlega orðin til reynsla af fyrri mótum
sem gerir ákveðna hluti einfaldari en tekur
samt ekki frá mönnum að setja sinn brag
á mótshaldið. Fyrir svona lítið samfélag
eins og Laugar er heilmikil vinna að taka
svona mót að sér. Við fórum út í það hérna
að skipa sérstaka framkvæmdanefnd
varðandi verklegar framkvæmdir en þær
eru það sem almenningur verður mest var
við," sagði Baldur.
- Þegar allt verður afstaðið og þegar litið
er til lengri tíma hlýtursvona samfélagi að
vera akkuríað halda Unglingalandsmót?
„Jú, það skyldi maður halda. (fyrsta
lagi sitja eftir hérna ákveðnar framkvæmd-
ir, ekki samt eingöngu tengdar íþrótta-
mannvirkjum, heldur hangir ýmislegt
annað á spýtunni. Þar má nefna frágang á
opnum svæðum og framkvæmdir í kring-
um grunnskólann og fleira mætti nefna.
f tengslum við mótið hefur komið inn á
þetta svæði þó nokkurt fjármagn sem
hefur í raun margfeldisáhrif inn í okkar
litla hagkerfi. Það eru ekki bara heima-
menn á Laugum sem njóta góðs af því
heldur er fólk hér í störfum víðs vegar að
úr sveitarfélaginu. Eftir mótið mun margt
sitja hér eftir á mörgum sviðum og má í
því sambandi nefna mannvirki, þekkingu,
reynslu og vonandi fjármuni."
- Unglingalandsmótin skipa orðið stóran
sess í þjóðfélagi okkar. Er það ekkijákvæð
þróun að þínu mati?
„Unglingalandsmótin standa í mínum
huga skýrast fyrir kjörorð UMFÍ: Ræktun
lýðs og lands, því að þarna er verið að gefa
börnum, unglingum og fjölskyldufólki
tækifæri á spennandi viðfangsefni um
verslunarmannahelgar. Þetta er að
minnsta kosti önnur afþreying en sú sem
í boði hefur verið um árabil. Unglinga-
landsmótin eru til þess m.a. að styrkja fjöl-
skylduböndin og um leið vettvangur fyrir
fjölskylduna til að vera saman við íþróttir
og heilbrigða afþreyingu. Þessi mót eru
klárlega komin til að vera og að mínu mati
munu þau eftir ákveðinn tíma rúlla á þeim
stöðum þar sem aðstaðan er fyrir hendi.
Þetta mun væntanlega stuðla að því að í
hverjum landshluta verða 2-3 staðir sem
geta tekið að sér svona mót í framtíðinni
og hafa umgjörð til þess,"sagði Baldur.
Baldur sagðist hlakka mikið til að fá
fjölda fólks til Lauga og sjá Reykjadalinn
skarta sínu fegursta.Tilhlökkunin er mikil í
því að sjá íþróttavöllinn taka á sig æ
skemmtilegri mynd og hérá Laugum verð-
ur í raun, þegar framkvæmdum lýkur, risin
stórkostleg aðstaða. Það verður gaman
að sjá svæðið og dalinn fullan af fólki en
áætlanir miðast við að hingað komi ekki
færra fólk en til Víkur í Mýrdal í fyrra.
Molafréttir:
Sýningargreinar
Til að brjóta upp hið hefðbundna
form íþróttakeppninnar hefur á
undanförnum Unglingalands-
mótum verið boðið upp á nok-
krar sýningargreinar. I ár verða
sýningargreinarnar þrjáren það
eru folf (frispy-golf), karate og
dans. Keppendum og gestum á
mótinu verður boðið upp á að
kynna sér þessar íþróttagreinar
á ákveðnum tímum yfir móts-
helgina.
Atriði úr Grease
Nú er Ijóst hvaða hljómsveitir
munu sjá um að halda uppi
fjörinu á kvöldvökum Unglin-
galandsmótsins, en alls verða
þrjár kvöldvökur, á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Hljómsveitirnar, sem um ræðir,
eru Von, (na Valgerður og hljóms-
veit, Oxford, Uppþot og Ultra
MegaTechnobandið Stefán. Fleiri
uppákomur verða á þoðstólum
og má þar nefna að sýnd verða
atriði úr söngleiknum Grease
í uppfærslu nemenda 7.-10.
þekkjar Litlulaugaskóla en leik-
sýningin var færð upp á árshátíð
skólans síðasta vetur.
36 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags ísiands