Skinfaxi - 01.05.2006, Page 40
Unglingar í frjálsum frá UÍA:
Hressir unglingar frá UÍA, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar. Þau
stefna öll til Lauga um verslunarmannahelgina.
Öll til Lauga
Fjölmennur hópur frá UfA, UFA og UMSS tók á dögunum
þátt í árlegu frjálsíþróttamóti í Gautaborg. Krakkarnir stóðu
sig með sóma en þátttakendur voru um fjögur þúsund víðs
vegar að úr heiminum.
Við hittum krakkana úr UÍA rétt áður en lagt var upp
í ferðina til Svíþjóðar og var að vonum mikil tilhlökkun í
hópnum.
Svíþjóðarferðin var aðeins upphitun en allir í hópnum
ætla að taka þátt í Unglingalandsmótinu á Laugum um
verslunarmannahelgina. Mörg þeirra hafa verið með á fyrri
mótum en það var samdóma álit þeirra að meiriháttar væri
að taka þátt í Unglingalandsmóti.
Skráning á Unglingalandsmótið hófst 10. júlí og af
fyrstu viðbrögðum að dæma stefnir í góða þátttöku.
NOVARTIS
CONSUMER HEALTH
Lamisil hlaup
Kælandi á kláðann
...einu sinni á dag í viku drepur fótsveppinn
Lamisil er borið á einu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á í þunnu lagi á sýkta húð þannig að það þekji allt sýkta
svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi (fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa,
gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að nota gegn sveppasýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef
þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.
40 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands