Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2006, Page 47

Skinfaxi - 01.05.2006, Page 47
Fréttir úr hreyfingunni... Aðalfundur Umf. Tindastóls: Páll Ragnarsson lét af formennsku eftir 30 ára starf Aðalfundur Umf. Tindastóls á Sauðár-króki var haldinn mánudaginn 27. mars. Starf fé- lagsins er og hefur verið öflugt en hjá félag- inu eru 5 deildir; frjálsíþróttadeild, knatts- pyrnudeild, körfuboltadeild, sunddeild og skíða- deild. Páll Ragnarsson, formaðurfélagsins, hætti á fundinum eftir 30 ára starf sem formaður en Páll var kosinn formaður félagsins 3. janúar 1976. Páll hefur unnið frábært starf og ætíð borið hag félagsins fyrir brjósti. Verður starf hans aldrei fullþakkað. Nýr formaðurTindastóls var kjörinn Gunnar Þór Gestsson. Á fundinum hættu einnig þrír aðrir stjórnar- V Páll Ragnarsson lengst til vinstri en með honum á myndinni eru Örn Ragnarsson og Frímann Guðbrandsson. menn sem hafa staðið við hlið Páls í áratug, það eru þeir Örn Ragnarsson, Frímann Guðbrandsson og Rúnar Björnsson. Öllum þessum mönnum eru færðar miklar þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið og hreyfinguna alla. Stjórn UMSE öll endurkjörin Þing UMSE var haldið laugardaginn 18. mars í Þelamerkurskóla. Formaður UMSE, Árni Arnsteinsson, setti þingið og fór yfir starfsemi UMSE á liðnu starfsári. Alls voru 26 þingfull- trúar mættir á þingið en 51 fulltrúi á rétt á setu á þinginu. Gestir þingsins voru Hringur Hreinsson og Ómar Bragi Stefánsson frá UMFÍ, fulltrúarfrá ÍSÍ, Hörgárbyggð, héraðsnefnd, UFA og Bústólpa. Jóhanna Gunnlaugsdóttir var sæmd starfsmerki UMFÍ. Nokkrar tillögur voru afgreiddar á þinginu eftir umræður í nefndum. Þær María Aldís og Elsa Guðný frá Ungmennaráði UMFÍ voru með kynningu á starfsemi ráðsins og möguleikum ungs fólks innan UMF(. Glæsilegar veitingar voru á borð bornar á þinginu, hádegisverðurinn var í boði KEA en kaffiveitingar í boði Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps. í lok dagskrárinnar voru verðlaun veitt fjölda félaga. (þróttamaður UMSE var kjörinn Björgvin Björgvinsson, skíðakappi frá Dalvík. Stjórn UMSE var endurkjörin en í henni sitja: Árni Arnsteinsson, formaður, Karl Ingi Atlason, gjaldkeri, Starri Heiðmarsson, varaformaður, Helga Guð- mundsdóttir, ritari og Jóhanna Gunnlaugsdóttir, meðstjórnandi. Varastjórn skipa: Eyrún Elva Marinósdóttir, Guðbjörg Hjartardóttir og Hringur Hreinsson. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 47

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.