Skinfaxi - 01.05.2006, Side 51
Fréttir úr hreyfingunni...
Gagnlegur samráðsfundur á Narfastöðum
Samráðsfundur Ungmennafélags íslands var
haldinn í upphafi sumars, dagana 12.-14.
maí, á Narfastöðum á Laugum í Suður-Þing-
eyjarsýslu en þar ríkti mikil veðurblíða alla
helgina. Stjórnin kom saman til fundar á
föstudeginum sem síðan var fram haldið
fram undir hádegi á laugardeginum. Eftir
hádegi hófst fundur með fulltrúum héraðssambanda en alls sóttu
um 40 manns fundinn. Farið var vítt og breitt um sviðið og voru
umræður gagnlegar og fræðandi. Fjallað var um mál sem efst
eru á baugi í hreyfingunni og spunnust um þau skemmtilegar
umræður. Ómar Bragi Stefánsson fór yfir sinn málaflokk en hann
er framkvæmdastjóri Unglingalandsmótsins á Laugum í sumar.
Þess má geta að þetta er fjórða landsmót Ómars sem framkvæm-
dastjóra. Björn Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins
2007 í Kópavogi, sagði fundarmönnum frá gangi mála og undir-
búningi þess móts. Fundurinn stóð síðari hluta laugardags en fyrir
hádegi á sunnudag skoðuðu fundarmenn íþróttamannvirkin í á
Laugum og komu við á íþróttavellinum þar sem framkvæmdir
stóðu yfir af fullum krafti. Ljóst er að á Laugum mun rísa glæsileg
aðstaða og heimamönnum til mikils sóma. Upp úr hádeginu á
sunnudag sneru menn glaðir í bragði til síns heima eftir mjög vel
heppnaðan fund um helgina.
Felix-kerfið í sífelldri þróun
Felix-kerfið er sifelldri þróun
og endurskoðun að sögn Láru
Óskarsdóttur verkefnisstjóra.
Félögin verða komin með hið
fullkomnasta rekstrarkerfi sem
völ er á áður en langt um líður.
Okkur lék forvitni að vita
hvernig nota félög Felix. Lára
sagði að það færi eftir stærð og
umfangi rekstursins. Félög, sem
reka sig frá degi til dags, halda
úti æfingaplani fyrir eina eða
fleiri deildir og eru allan ársins
hring að taka þátt í mótum,
hafa aðrar þarfir en félög sem
reka sig tímabundið ár hvert,
t.d. vegna móta.
„( kerfinu er hægt að leggja
gjöld á iðkendur og merkja inn
mætingar í kladda, en eins og
ég sagði áðan er ekki sama
þörf alls staðar. Ennþá vilja
mörg félaganna nota skráning-
arhlutann án þess að nota
gjaldkerahlutann eða kladd-
ana,"sagði Lára.
- Hvað fá þá félög, sem nota
skráningarhlutann elngöngu, út
úrþvíað notaFelix?
„Þau félög sem nota skrán-
ingarhlutann geta treyst á rétt
heimilisföng félaga, því að kerf-
ið er tengt þjóðskrá. Hægt er
að prenta þau nöfn sem eru
á skrá í félaginu út á límmiða.
Varðandi yngri félagsmenn þá
geta notendur kerfisins séð
nöfn þeirra forráðamanna sem
eiga sama lögheimili og barnið.
Þetta er mjög mikilvægt fyrir
félög þar sem stór hluti iðk-
enda í hreyfingunni er undir
lögaldri. Það er auðvelt að
prenta t.d. á Excel út úr kerfinu
en minni félög hafa nýtt sér
það til að senda í banka til inn-
heimtu. Svo má ekki gleyma
því að aðgengi þeirra sem taka
við af fýrrum stjórnarmönnum
eða fyrrum starfsmönnum
er miklu betra í Felix en ef
skráningar væru bundnar einni
tölvu."
- Eru starfsskýrslur öðruvísi
í Felix en þær starfsskýrslur sem
áður voru sendar inn á Excel?
„Já og nei, skýrslurnar
sem Felix tekur saman gefa
sömu upplýsingar og settar
voru inn á Excel-skjölin áður,
þ.e. félagatal sem inniheldur
X við iðkendur, ársreikninga
og stjórnarupplýsingar. Eini
munurinn á upplýsingum milli
þessara tveggja forma er að
samantekt stjórnar er ekki sett
inn í Felix."
- Hver erþá breytingin?
„Það er hvernig þú setur
upplýsingarnar inn, það sem
áður fór inn í Excel fer núna inn
í kerfið sem tekur upplýsingar-
nar saman, svipað og þegar
við skilum skattinum á netinu.
Felix er byggt upp af möppum,
félagar og iðkendur eru skráðir
í sérstakar möppur. Félagsmað-
ur fer ekki inn í iðkendamöppu
en iðkandi geturfarið inn í
félagamöppu, því að allir iðk-
endur eru jú félagsmenn en
ekki eru allirfélagsmenn iðk-
endur. Kerfið les út úr möpp-
unum inn í starfsskýrslurnar en
þar þurfa félögin að sam-
þykkja fjöldatölur og loka
þeim þætti. Það sama á við um
stjórnarmenn, þeir eru skráðir
inn í stjórnarmöppu inni í
Felix sem les svo nöfnin yfir í
starfsskýrsluna. Það eina sem
er nánast alveg eins í Excel og
Felix er að það þarf að slá inn
ársreikninga inn á bókhalds-
lykla sem þar eru. Bókhalds-
lyklar í Felix eru þeir sömu og
voru áður í Excel-skjölunum,"
sagði Lára Óskarsdóttir, verk-
efnisstjóri Felix, í samtali við
Skinfaxa.
Ef félögin óska eftir aðstoð
við að læra á kerfið eða færa
inn starfsskýrslu geta þau haft
samband við Láru í síma 897
0746 eða á netfangið lara@fe-
lix.is. Einnig er hægt að nálgast
upplýsingar hjá UMFl og ÍSÍ.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 51