Skinfaxi - 01.02.2007, Page 14
UMFI
Umsóknir óskast
Ungmennafélag íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum
og sveitarstjórnum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd
12. Unglingalandsmóts UA/IFÍ sem haldið verður 2009. 1
Unglingalandsmót um verslunarmannahelgina
Unglingalandsmót UMFl er vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð haldin um verslunarmannahelgina
ár hvert. Keppt er í fjölda íþróttagreina í aldursflokkum 11-18 ára. Á Unglingalandsmótum er boðið upp
á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Unglingalandsmót UMFÍ hafa á
undanförnum árum hlotið góðar viðtökur hjá fjölskyldufólki jafnt sem ungu fólki, enda góður kostur
sem heilbrigð skemmtun um mestu ferðahelgi ársins. Unglingalandsmót UMFÍ í ár verður haldið að á
Flöfn í Flornafirði dagana 3.-5. ágúst.
10.UNGLINGA
LANDSMQT
UMFl
Höfn Hornafiröi 3.-5. ógúst
A/likil lyftistöng fyrir bæjarfélög
Unglingalandsmót UMFl hafa verið mikil lyftistöng fyrir bæjarfélögin þar sem þau hafa verið haldin.
Öflug uppbygging íþróttamannvirkja og aðstöðu hefur jafnan fylgt mótunum. Auk þess hafa mótin
hleypt lífi I innra starf þeirra félaga sem komið hafa að framkvæmd mótanna.
Umsóknarf restur
Umsóknum um að halda 12. Unglingalandsmót UWIFl 2009
skal skilað til Þjónustumiðstöðvar UMF(, Laugavegi 170-172,
105 Reykjavík fyrir 1. júní 2007.
Ungmennafélag
www.umfi.is
íslands
QOIQNI • 6(780