Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2007, Qupperneq 22

Skinfaxi - 01.02.2007, Qupperneq 22
25. LoaíAá4mM' UM5Í Kóptwvgl 5.-8. jútí: OCD57 25.LANDSMÓT UMFÍ Gunnar Birgisson, formaður Landsmótsnefndar. Frá kynningarfundi 25. Landsmóts UMFÍsem fór fram í Smáranum. Kynningarfundur Kynningarfundur 25. Landsmóts Ungmennafélags íslands í Kópavogi fór fram í Smáranum 6. febrúar og er talið að hátt í 100 manns hafi sótt fundinn. í lokfundarins rituðu helstu styrktaraðilar mótsins undir samning þar að lútandi. Fyrirtækin eru Sparisjóður Kópavogs, Toyota, Rúmfatalagerinn, Bónus, Nor- vik og Vífilfell. Stuðningur umræddra fyrirtækja er ómetanlegur og léttir á öllum undirbúningi fyrir Landsmótið. Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi og Ijóst að öllu verður til tjaldað til að gera umgjörð mótsins sem glæsilegasta á 100ára afmælis- ári Ungmennafélags (slands. Risalandsmót í Kópavogi Mótið, sem kallað er Risalandsmót, verður haldið dagana 5.-8. júlí. Menningarhátíð Kópa- vogs verður haldin í tengslum við Landsmótið og verður Kópavogur undirlagður af glæsi- legum viðburðum. Landsmót UMFÍ er vettvangur keppnisíþrótta sem og sýningargreina. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi því að margs konar keppnir verða utan stiga, milli hópa sem og einstaklinga. Keppni hefst klukkan 8 á morgni fimmtudagsins 6. júlí en setningarhátíðin verður um kvöldið. Fyrsta flokks aðstæður Á fundinum kom fram eindreginn vilji til að gera setningarhátíðina sem glæsilegasta í formi tónlistar- og leiklistaratriða en á sama tíma verður vígð ný stúka á Kópavogsvelli. Erlendir gestakeppendur munu taka þátt í mótinu og íþróttamenn á heimsmælikvarða munu koma í heimsókn. Þetta kom fram í máli Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra Kópa- vogs, en hann ávarpaði fundinn í upphafi. Valdimar Leó Friðriksson, formaður UMSK, sagði undirbúning á áætlun og að um 2000 sjálfboðaliðar myndu með einhverjum hætti vinna við mótið. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, sagði Ijóst að umgjörð mótsins yrði alveg einstökog að mótið myndi draga til sfn tugþúsundir gesta af öllu landinu. Björn sagði ennfremur að mótið yrði haldið við fyrsta flokks aðstæður í Kópavogi. Þar væri raunar allt til alls nú þegar og myndu þessar frábæru aðstæður örugglega setja svip sinn á mótið. 22 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.