Skinfaxi - 01.02.2007, Page 38
Guðmundur Guðmundsson
kjörinn formaður UMSS
Guðmundur Þ. Guðmundsson var kjörinn
formaður UMSS til eins árs í stað Rúnars
Vífilssonar er gaf ekki kost á sér áfram á þingi
UMSS sem haldið var á Hólum í Hjaltadal 23.
febrúar. Aðrir í stjórn eru Margrét Stefáns-
dóttir og Arnar Halldórsson sem kjörin voru
til tveggja ára í fyrra og þeir Páll Friðriksson
og Sigmundur Jóhannesson sem kjörnir voru
til tveggja ára á þinginu i febrúar.
Þingið var starfsamt og lágu margar tillögur fyrir
því sem fengu allar málefnalega umræðu. Björn
B. Jónsson, formaður UMF(, ávarpaði þingið en
af hálfu UMF( sátu einnig þingið þeir Sæmundur
Runólfsson, framkvæmdastjóri, og Haraldur Þ.
Jóhannsson. „Þingið hjá okkur var málefnalegt
og gekk vel í alla staði. Annars gengur starfsem-
in hjá okkur með ágætum en iðkendur hafa
nokkuð yngst síðustu misseri. Krakkarnir frá
okkur hafa staðið sig vel á mótum sem þau hafa
tekið þátt í. Hestamenn eru áber-
andi í starfseminni hjá okkur og eins hefur kylf-
ingum fjölgað mikið," sagði Arnar Halldórsson
sem kjörinn var í stjórn UMSS á þinginu. Arnar
sagði einnig að þátttakendur frá UMSS myndu
fjölmenna á Landsmótið í Kópavogi í sumar.
„Það ríkir bjartsýni innan nýju stjórnarinn-
ar og við erum að sverma fyrir því að svæðisfull-
trúi UMF( verði staðsettur hjá okkur á Sauðár-
króki,”sagði Arnar Halldórsson.
Yerid velkomin
í Dalvíkurbyggð
í Sundlaug Dalvíkur, geta allir skemmt
notið lífsins
og slappað af.
r yrir þa sem vilja styrkja
kroppinn er Heilsuræktin
í sundlauginni
tilvalinn kostur.
Ný og fullkomin tæki.
Sími: 466 3233
sundlaug@dalvik.is
www.dalvik.is
Frá þingi UMSS á Hólum í Hjaltadal.
I