Skinfaxi - 01.02.2008, Page 35
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
Helga Margeét
íþróttamaður USVH
Helga Margrét Þorsteinsdóttir var kjörin
íþróttamaður USVH árið 2007 með 88
stig. Helga Margrét tók á móti farand-
bikarnum á þingi USVH, eignarbikarn-
um ásamt ávísun frá Menningarsjóði
Sparisjóðs Húnaþings og Stranda að
upphæð 50 þúsund krónur.
í öðru sæti var Fanney Dögg Indriða-
dóttir með 29 stig og í þriðja sæti var
Svavar Örn Hreiðarsson með 17 stig.
Stjórn USVH óskar þeim öllum innilega
til hamingju með árangurinn á árinu.
U.S.VH.
Harpa Ósk íþrótta-
maður ársins í
Skaftárhreppi
Harpa Ósk Jóhannesdóttir, frjálsíþrótta-
kona úr ungmennafélaginu Skafta, var
kjörin íþróttamaður ársins 2007 í Skaft-
árhreppi við hátíðlega athöfn.
Á Iþróttahátíð USVS sl. sumar vann
Harpa Ósk fern gullverðlaun og fern
silfurverðlaun í flokki 15-16 ára meyja.
Einnig keppti hún á mótum hjá HSK og
á Unglingalandsmóti UMFl á Horna-
firði í sumar með góðum árangri. Auk
Hörpu voru Svavar Helgi Ólafsson og
Kristín Lárusdóttir tilnefnd.
Erla Dögg íþrótta-
maður Reykjanes
bæjar
Sundkonan Erla Dögg Haraldsdóttir var
útnefnd íþróttamaður Reykjanesbæjar
2007.1 öðru sæti varð borðtenniskappinn
Jóhann Rúnar Kristjánsson og í því þriðja
varð Brenton Birmingham, körfuknatt-
leiksmaður. Þau voru heiðruð við athöfn
í íþróttahúsinu í Njarðvík. Þar fengu
einnig viðurkenningar bestu íþrótta-
menn hverrar greinar og allir íslands-
meistarar ÍRB á árinu en þeir voru 220
talsins.
Erla Dögg fór sannarlega á kostum á
þessu ári. Hún setti alls tíu Islandsmet
og í lok ársins átti hún orðið fimm gild-
andi Islandsmet í 25 metra brautinni og
eitt í 50 metra brautinni.
Agústa og Sigursteinn
íþróttafólk ársins í Árborg
Á uppskeruhátíð íþrótta- og tómstunda-
ráðs Árborgar var Ágústa Tryggvadóttir,
frjálsíþróttakona, kjörin íþróttakona árs-
ins og íþróttakarl Sigursteinn Sumarliða-
son, knapi, sem einnig féltk skjöld og
sérstaka viðurkenningu frá bæjarstjórn.
Hvatningarverðlaun
hlaut knattspyrnudeild
Umf. Selfoss og menn-
ingarviðurkenningu
2007 hlaut jólasveina-
nefnd Umf. Selfoss.
Jóhanna og Svavar
íþróttamenn Hveragerðis
Jóhanna Björk Sveinsdóttir, körfuknatt-
leikskona úr Hamri, og Svavar Páll Páls-
son, körfuknattleiksmaður úr Hamri,
voru krýnd íþróttamenn Hveragerðis
2007. Eftirtaldir íþróttamenn voru
sérstaklega heiðraðir: Ágústa Gísladótt-
ir, fimleikar, Hafrún Hálfdánardóttir,
körfuknattleikur, Haf-
steinn Valdimarsson,
blak, Kristján Valdimars-
son, blak, Samuel
Ochieng Sewe, knatt-
spyrna, og Úlfar Jón
Andrésson, íshokký.
^aGERt)^’
Sigurður Ágúst
íþróttamaður HSH 2007
Sigurður Ágúst Þorvaldsson, körfuknatt-
leiksmaður, var kjörinn íþróttamaður
HSH 2007. Sigurður, sem er 27 ára, hef-
ur með framgöngu sinni undanfarin ár
skipað sér sess sem einn allra besti körfu-
knattleiksmaður landsins.
Síðastliðið vor var Sigurður í stóru
hlutverki þegar Snæfell stóð í barátt-
unni um Islandsmeistaratitilinn. Liðið
endaði í 3. sæti deildarinnar en datt út í
undanúrslitum gegn íslandsmeisturum
KR í hörkuviðureign. Siggi skilaði 17
stigum og 6 fráköstum að meðaltali í leik.
Sigurður notaði sumarið vel og hefur
styrkt sig mikið líkam-
lega. Árangurinn hefur
ekki látið á sér standa
og hefur pilturinn aldrei
spilað jafn vel og hann
hefur gert það sem af
yfirstandandi tímabili.
I haust vann hann ásamt félögum sínum í
Snæfelli Powerade-bikarkeppnina.
Fyrir utan íþróttahæfileika sína er
Sigurður einstakur persónuleiki og góð
fyrirmynd í alla staði. Leikmenn, þjálf-
arar og stuðningsmenn bera mikla virð-
ingu fyrir þessum frábæra íþróttamanni.
Kylfingur í fyrsta sinn
íþróttamaður Ólafsfjaröar
Sigurbjörn Þorgeirsson, kylfingur úr Golf-
klúbbi Ólafsfjarðar, var kjörinn íþrótta-
maður Ólafsfjarðar árið 2007. Sigurbjörn
átti mjög gott golfár, það langbesta frá
upphafi.
Sigurbjörn varð Norðurlandameistari
með landsliði 35 ára og eldri, Islands-
meistari 35 ára og eldri, meistari meistar-
anna á lokamóti KB-mótaraðarinnar, í
5. sæti á síðasta KB-bankamótinu í Vest-
mannaeyjum og í 14. sæti á heildarstiga-
listanum, Islandsmeistari lögreglumanna
og klúbbmeistari GÓ. Það má þvi sannar-
lega segja að þetta hafi verið árið hans
Sigurbjörns.
Þetta er í fyrsta sinn
sem kylftngur er út-
nefndur íþróttamaður
Ólafsfjarðar. Skíða-
menn hafa 27 sinnum
hlotið titilinn, knatt-
spyrnumenn hafa 4
sinnum hlotið hann og skotmaður einu
sinni. 1 2. sæti í kjöri íþróttamanns
Ólafsfjarðar varð Elsa Guðrún Jóns-
dóttir, skíðagöngukona, en hún hefur
þrisvar sinnum orðið íþróttamaður
Ólafsfjarðar. I 3. sæti varð Þorvaldur
Þorsteinsson, knattspyrnumarkvörður.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 35