Skinfaxi - 01.02.2008, Side 39
84. ársþing UMSK:
Fram undan eru næg verkefni og spennandi tímar
84. ársþing UMSK var haldið í Iþrótta-
miðstöðinni í Laugardal 27. febrúar sl.
Um 80 þingfulltrúar sóttu þingið. Valdi-
mar Leó Friðriksson, formaður UMSK,
sagði í ávarpi sínu að félagsmenn væru
um 35.000 í 31 aðildarfélagi, þar af væru
sex fjölgreinafélög með 33 deildir. Innan
aðildarfélaganna eru skráðir 18.724 iðk-
endur í 21 íþróttagrein. I máli hans kom
fram að félagsmönnum á sambandssvæði
UMSK fer fjölgandi sem leiðir m.a. af
sér að þörf er á fleiri mannvirkjum til
íþróttaiðkunar og félagsstarfa. Landsmóts-
haldið í Kópavogi bar hæst viðburða á
árinu og vildi Valdimar þakka öllum sem
komu að því verkefni en mótið var rekið
án halla. Valdimar sagði að fram undan
væru næg verkefni og spennandi tímar.
Þær breytingar urðu á stjórninni að
Hannes S. Jónsson og Sævar Kristjánsson
gengu úr stjórn. Margrét Björnsdóttir kom
inn í aðalstjórn og þær Vilborg Guð-
mundsdóttir og Alda Helgadóttir komu
báðar inn í varastjórn.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFl, og Björn B. Jónsson, fyrrverandi
formaður UMFl, sátu þingið. Helga Guð-
Frá þingi UMSK.
Efst til vinstri:
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ,
og Birgir Ari
Hilmarsson,
fyrrv. fram-
kvæmdastjóri
UMSK. Efst til
hægri: Þingfull-
trúar.Til vinstri:
Valdimar Leó
Friðriksson,
formaður UMSK,
í ræðustóli.
rún færði Birgi Ara Hilmarssyni blóm-
vönd í þakklætisskyni fyrir góð störf en
Birgir Ari lét af störfum sem framkvæmda-
stjóri UMSK eftir 16 ár í starfi. Ólafur
Rafnsson, forseti ÍSÍ, sæmdi Birgi Ara
síðan gullmerld ÍSl. UMSK færði honum
áritað úr í kveðjuskyni.
Valdimar Smári Gunnarsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri UMSK
og hóf hann störf þann 1. mars sl.
Valdimar hefur milda reynslu i störfum
fyrir ungmenna- og íþróttahreyfmguna,
en hann var m.a. starfsmaður UMFÍ í
mörg ár.
Framtíðin ER HÉR
tfasics
Gel-Kinsei - Kominn í allar helstu sportvöruverslanir
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 39