Skinfaxi - 01.11.2008, Blaðsíða 26
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags íslands:
Tálknafjörður
Þórberg hf.: Strandgötu
Hvammstangi
Húnaþing vestra,
Hvammstangabraut 5
Kvenfélagið Iðja
Blönduós
Húnavatnshreppur, Húnavöllum
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Hnjúkabyggð 33
Sauðárkrókur
Hólaskóli, Háskólinn á Hólum,
Hólum í Hjaltadal
Náttúrustofa Norðurlands vestra,
Aðalgötu
Steinull hf., Skarðseyri 5
Vinnuvélar Guðmundar og Skúla sf.,
Borgarröst4
Akureyri
Haukur og Bessi tannlæknar
(sgát ehf., Lónsbakka
Raftákn ehf., Glerárgötu 34
Skóhúsið - Bónusskór, Brekkugötu 1 a
Svalbarðsstrandarhreppur, Ráðhúsinu
Teikn á lofti ehf teiknistofa,
Skipagötu 12
Grenivík
Stuðlaberg útgerð ehf., Ægissíðu 11
Grímsey
Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnasonar
ehf., Hátúni
Húsavík
Hóll ehf., Höfða 11
Jarðverk ehf., Birkimel
Laugar
Ferðaþjónustan Narfastöðum ehf.,
Narfastöðum
Litlulaugaskóli, Laugum
Norðurpóll ehf., Laugabrekku
Reykjadal
Kópasker
Vökvaþjónusta Eyþórs ehf.,
Bakkagötu 6
Þórshöfn
Trésmiðjan Brú hf., Brúarlandi
Vopnafjörður
Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23
Egilsstaðir
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
Hússtjórnarskólinn Hallormsstað
Þ.S. Verktakar ehf., Miðási 8-10
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður,
Hafnargötu 44
Eskifjörður
Bókabúðin Eskja, Útkaupsstaðabraut 1
Eskja hf., Strandgötu 39
Neskaupstaður
Rafgeisli Tómas R Zöega ehf.,
Hafnarbraut 10
Síldarvinnslan hf., útgerð, Hafnarbraut 6
Smáraprent, Urðarteigi 15
Jólatréð - jólasaga
Það var einu sinni jólatré sem var búið að þjóna eigendum sínum vel og lengi, svo lengi að öll börn
fjölskyldunnar, sem voru 7 talsins, mundu ekki eftir neinu öðru tré. Tilhlökkunin var alltaf mikil hjá
krökkunum þegar tréð var tekið niður af háaloftinu og pabbi dustaði rykið af gömlu pappaöskjunum
sem skrautið var geymt í. I þessum öskjum var fallegt skraut, marglitar, glitrandi kúlur, litlar bjöllur og
pokar með gömlum jólasveina- og helgimyndum á. Þetta skraut var búið að vera til jafnlengi og tréð og
öll börnin áttu svo fallegar minningar í sambandi við skrautið og gamla, góða jólatréð.
Það var kominn desember og jólaundirbúningurinn í fullum gangi, laufabrauðið hafði verið steikt
og búið var að koma því á sinn stað í búrinu, kortagerð og jólaföndur voru á lokastigi, ilmurinn af
piparkökunum og öllum hinum smákökunum var dásamlegur. Uppi á háaloftinu beið jólatréð, það vissi
alltaf að þegar jólastjarnan var komin á Kaupfélagið, nálgaðist sá tími sem tréð fengi að njóta sín.
Uppi á háaloftinu var lítill gluggi sem sneri að Kaupfélaginu, inn um þann glugga skein alltaf yndis-
leg jólabirta í desember, það var sú birta og ómurinn af söng jólasveinanna sem sungu fyrir börnin á
svölum Kaupfélagsins sem kom jólatrénu í gott hátíðar- og jólaskap. Dagarnir liðu hratt í jólaundir-
búningnum, heimilið var að verða tilbúið fyrir jólin, krakkarnir voru komnir í frí úr skólanum fyrir
nokkrum dögum, þau höfðu verið dugleg að laga til hjá sér og hjálpa mömmu sinni við ýmislegt sem
þurfti að gera fyrir þessa miklu hátíð ljóss og friðar. Þorláksmessudagur rann upp, veðrið var virkilega
fallegt, um nóttina hafði snjóað og úti var ofurlítið frost. Allir voru ánægðir þegar þeir litu út, allt var
svo hreint, fallegt og jólalegt um að litast. Yngstu börnin fóru út að leika sér en þau eldri voru að hjálpa
til, öllum fannst þessi dagur svo lengi að líða, allir voru spenntir.
Dagurinn leið samt áfram og var að kveldi kominn. Það var einmitt á Þorláksmessukvöld sem
fjölskyldan var vön að skreyta jólatréð, þetta var eitt af því sem krökkunum þótti einna mest spennandi
og hátíðlegt fyrir jólin. Klukkan átta, þegar allir voru búnir að borða og frágangi eftir matinn lokið,
fór pabbi út og sótti tré, nýhöggvið grenitré sem hann hafði komið með um leið og hann kom heim
úr vinnunni. Hann var líka með lítinn kassa undir hendinni. I þessum kassa var mikið af fallegu, nýju
jólaskrauti sem hann hafði keypt fyrr um daginn. Yngri krökkunum fannst þetta mjög spennandi, og
þeim eldri líka en samt fannst þeim eins og eitthvað væri að, mamma varð mjög hissa. Pabbi setti tréð
inn í stofu, festi það svo í fótinn og allir hjálpuðu til við að koma nýja, glitrandi skrautinu á. I kassanum
voru rauðar og grænar kúlur, litlir sætir jólasveinar og stjörnur.
Allt var þetta til þess að hengja á nýja tréð. Þegar allt var komið á tréð, vafði pabbi að siðustu
langri, hvítri lengju utan um tréð.
„Jæja,“ sagði pabbi, „þá er tréð orðið fallegt og virkilega jólalegt.“
Jú, vissulega var tréð mjög fallegt og jólalegt, en eitthvað vantaði samt, hugsaði mamma með sér.
Nú var komið að háttatíma á þessu Þorláksmessukvöldi, þegar klukkan sló tólf voru allir sofnaðir.
Aðfangadagur, þessi yndislegi dagur, sem allir biðu eftir, byrjaði eins og dagurinn áður, bjartur,
fagur og lítið eitt hafði bætt í snjóinn sem gerði jólin enn hátíðlegri. Krakkarnir drifu sig á fætur, þau
gátu ekki sofið lengur fyrir spenningi. En það var eitthvað sem vantaði fyrir þessi jól, þeim fannst það
bara en voru ekki viss um hvað það væri. Krakkarnir fóru út að leika sér. Einn strákurinn, sem var 11
ára, hitti vin sinn úr næstu götu, þeir fóru að leika sér saman, bjuggu til snjókarl. Á meðan ræddu þeir
um jólin. Vinurinn var ekki mjög spenntur fyrir jólunum, mamma hans og pabbi voru svo fátæk, þau
áttu til dæmis ekki neitt jólatré. Einnig yrði lítið um gjafir þessi jól. Þegar þeir höfðu lokið við snjókarl-
inn, sem þeir kölluðu Snæfinn, var kominn hádegismatur. I matartímanum sagði strákurinn frá öllu
saman með vin sinn.
Eftir matinn kallaði pabbi alla inn í stofu. Hann bað þau að setjast og hlusta á sig og spurði svo alla
að því hvort þau vildu ekki gefa stráknum í næstu götu og fjölskyldu hans nýja tréð og nýja skrautið og
þau mundu nota þeirra gamla, góða tré. „Júhhh,“ sögðu allir og krakkarnir stukku í fangið á pabba, en
fallegt bros færðist yfir andlit mömmu. Nú varð uppi fótur og fit, pabbi og strákurinn, sem átti vininn,
tóku nýja tréð og fóru með það til vinarins ásamt peningum í poka sem strákurinn hafði hrist úr spari-
bauknum sínum. Vinurinn og fjölskylda hans urðu mjög glöð og sögðu að þetta væri besta jólagjöf sem
þau hefðu nokkurn tíma fengið. Mamma vinarins þakkaði þeim vel fyrir með tárin í augunum. Nú var
farið og opnað upp á háaloft til þess að sækja tréð, þeirra ekta jólatré og allt skrautið sem þeim þótti svo
vænt um.
Um miðjan dag var búið að skreyta tréð. Það var dásamlega fallegt og allir voru komnir í sitt bestá
jólaskap. Undir öllu fallega skrautinu brosti svo gamla, góða tréð.
Af jólavef Júlla
26 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands