Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 13
það í hverjum barnaskóía og Véra samtaka
um að sú kyningarstarfsemi, sem hafin er,
geti blómgast og náð sínum tilgangi.
Sjómannablaðið „Víkingur“ hefir náð til
sjómannanna í Boston (en meiri hluti þeirra
hefir fluttzt þangað eftir 1910) og mun
leggja áherzlu á, eftir því, sem við verður
komið, að kynna athafnalíf þeirra frændum
þeirra hér heima.
Hér birtast þrjár myndir af togaranum
,,Fordham“ frá Boston og sýna myndirnar
það, að þeir eiga einnig við óblíða náttúru
að etja sjómennirnir í Boston, engu síður en
hér. Skipstjóri á ,,Fordham“ er Jón Ásgeirs-
son frá Álftamýri við Arnarfjörð; hann er 44
ára gamall, fæddur 22. maí 1895.
Á unga aldri fór hann til sjós eins og
flestir Vestfirðingar og var þá bæði á línu-
bátum og togurum. Hann var með Aðalsteini
Pálssyni á ,,Kára“ Sölmundarsyni“ og á
„Snorra goða“ með Páli Matthíassyni.
Áður en hann fór vestur lauk hann
prófi við Stýrimannaskólann í Reykja-
vík, en til Boston kom hann árið 1925,
var þá háseti á togara nokkra mánuði
og síðan stýrimaður í tvö ár. Fékk hann
þá skipstjórastöðu og hefir gegnt þeirri
stöðu jafnan síðan.
Jón Ásgeirsson er dugnaðar skip-
stjóri og aflasæll mjög. Bræður hans
tveir, þeir Jóhannes og Ásgeir, eru
einnig í Boston. Jóhannes var stýri-
maður hjá Jóni í nokkur ár, en fyrir
tveim árum fékk hann skip hjá sama
félagi og hefir fetað í fótspor bróður
síns með dugnað og aflasæld. Ásgeir er
nú stýrimaður hjá Jóni bróður sínum
og vonandi getur „Víkingur“ sagt frá
fyrstu veiðiferð hans sem skipstjóra,
áður en langt um líður.
Þessi rnynd er tekin af Fordham «, skipi
Jðns Ásgeirssonar, er Jiaö kom til hafnar í Boston
úr veidiferð í síðastliðnum jannarmánnði. Eins og
myndin sýnir er skipið nœrfelt eitin klakaklumpur
ofanjnlja. — Ægir Karl og Kári hafa verið held-
ur óblíðir i fangbrögðum í Jieirrí sjóferðinni!
Fyrri myndin er tekin af Fordham « í sama
skiftið og se'st Jðn skipstjóri í brúarglugganuni.
Úr þeírri veiðíferð, er myndírnar lýsa, var
komið í lok janúar s.l., eftir sex daga veiði
með 120 tonn, og aflahlutur háseta varð 78
dollarar eða ísl. krónur 510,12.
Þetta þætti lagleg „þénusta“ hér heima, en
myndirnar af „Fordham" sýna, að hún muni
ekki fengin fyrirhafnarlaust.
Um leið og „Víkingur“ sendir íslenzku sjó-
mönnunum í Boston kveðju sína og beztu vel-
farnaðaróskir, vill hann nota tækifærið og
biðja þá að senda blaðinu til birtingar, grein-
ar um störf þeirra og æfikjör þar vestra, sem
svo aftur á móti mætti verða til þess að við-
halda og efla sambandið á milli íslendinga
austan hafs og vestan. Væntir blaðið þess,
að vel verði undir þetta vikizt og er þakklátt
öllum, sem styðja það í baráttunni fyrir menn-
ingar- og hagsmunamálum hinnar íslenzku
s j ómannastéttar.
VÍKINGUR