Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Page 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Page 14
Fátíð fyrirbrigði á hafinu Sigurjón Ólafsson skipstjóri skýrir frá höfrungavöðu er hann sá á síídveiðum sumarið 1917 Mér datt í hug þegar ég las grein dr. Bjarna Sæmundssonar um „Höfrunga“, í febr. hefti Víkings, að það ætti vel v.ið að ritið flytti við og við greinar um fremur óvenju- lega fyrirburði á hafinu, skráða af mönnum, sem hafa upplifað þá, eða eftir heimildum þeirra manna, sem treysta má til þess, að greina satt og rétt frá öllum atvikum. Nú ætla ég að greina frá einum slíkum atburð.i, sem fyrir mig hefir komið. Það var árið 1917. Ég var þá skipstjóri á togaranum ,,Rán“ frá Reykjavík. Skipið var á síldveiðum um sumarið. Síðla sumars var skipið statt nokkuð djúpt út af Þistilfirði. — Bianka-logn ,var og sóiskin, hafflötur'inn sléttur sem spegill og glampaði allur í sól- ardýrðinni svo langt, sem augað eygði. Mér varð litið til vesturs og sé höfrungavöðu mikla, nokkuð djúpt út af Melrakkasléttu, koma vaðandi austur með miklum hraða og nálgast skjótt og má þegar greina að hún er ekki einsömul á ferð, því að á undan henni fer reyðarhvalur mikill og hvalkálfur með honum.Hraði fiskanna var svo geysilegur, að ég er sannfærður um að ekkert það skip, sem er.n hefir verið byggt hraðskreiðast, kemst í námunda við hraða þann, sem hvalfiskar þessir höfðu. Reyðarhvalurinn og kálfur hans virtust vera miklum ótta lostnir, eins og um líf eða dauða væri að tefla og tóku engin djúp köf, heldur syntu ofansjávar með fyrrnefndum hraða. Kálfurinn synti við hægri hlið hvals- ins og hélt sig framanvert við miðju hans, en höfrungarnir skammt aftan við sporðinn, nema þegar þeir tóku loftköst, náðu þeir nokkuð lengra fram, allt að því á móts við bakugga hvalsins. Sýn þessi bar nokkuð fljótt fyrir eins og gefur að skilja, af áður umgetnum hraða, og þegar fiskarnir fóru fram hjá skipinu mun fjarlægðin hafa verið ca. 700—800 metrar. Vaðan hélt í austur í stefnu fyrir Langanes og hvarf þar í hafsbrún fyrir augum mér og veit ég því ekki og sjálfsagt enginn hvar og hvernig þessum leik lauk. Atburður þessi hefir verið mér mjög hug- stæður síðan, þó að eigi hafi af því orðið fyrr en nú, að hann birtist á prenti. Hitt er og líka um hann að segja, að hann mun vera næsta fágætur, að ég held. Er þetta að minnsta kcsti hið eina sinn að slíkur atburður sem þessi hefir fyrir mig borið öll þau ár, er ég hefi stundað sjó, og ekki man ég til þess, að hafa heyrt aðra á svipað fyrirbrigði minn- ast. Af þessu held ég atburðinn fátíðan, en að sjálfsögðu ekki einstæðan. Enda benda gömul munnmæli til þess og skal þeirra getið hér: Hin gömlu munnmæli herma það, að höfr- ungar sækist eftir því, að drepa stórhveli með þeim hætti að ráðast að þeim og leggja þau í einelti og létta þeim leik eigi fyrr, en hval- urinn hefir sprungið af mæði og rífa þá úr honum tunguna — og éta hana, segir sagan. En hvað sem um þetta má segja, getur þó verið að munnmælin hafi nokkuð fyrir sér í þessu efni. Ekki er ólíklegt, að fyrr á öldum, löngu áður en hvalaveiðar hófust og hvalaþvögurnar fóru inn um alla firði, voga og víkur, að þá hafi mönnum gefist tækifæri, máske all-oft, VÍKINGUR 14

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.