Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Síða 15
til þess að sjá slíka atburði er ég hefi greint
hér að framan — og séð að fullu leikslok.
Hver náttúra þessara sædýra er, getur að
líkindum enginn svarað. Dr. Bjarni Sæmunds-
son ritar um höfrungavöðurnar, er elta skip-
in. Skyldi þessi eltingaleikur þeirra eiga or-
sök sína í því sama eðli og að elta stórhveli?
Ennfremur getur dr. Bjarni þess, að stökkull-
inn (léttirinn) sé skyldur höfrungum. En um
stökkulinn vita menn það, að hans náttúra
er það, að færa í kaf það, sem flýtur. Um
reyðarhvalinn er sagt að hans náttúra sé að
verja og vernda það, sem flýtur og gamlar
sagnir ganga um það, að hann hafi oft vernd.
að fiskibáta á miðum, þegar illhveli vildu
granda þeim.
Já — hver er náttúra þessara sævardýra,
sem áður um getur, spyr ég enn, og hver
getur svarað því rétt? — Líklegast getur það
enginn, því að vísast eru þetta leyndarmál
náttúrunnar, sem enginn skilur annar en sá,
er allt hefir skapað og öllu lífi lögmál sett,
og mun því heyra til þeim dularheimi, sem
geymir lífsins huldumál.
slarfsafm
æli
Hinn 28. f. m. áttu þeir Sigurður Péturs-
son skipstjóri og Haraldur Sigurðsson 1. vél-
stjóri á ,,Gullfossi“ 25 ára starfsafmæli hjá
Eimskipafélagi íslands. Þann dag fyrir 25
árum voru þeir báðir lögskráðir á ,,Gullfoss“,
fyrsta skip félagsins, og hafa þeir æ síðan
verið á skipinu.
Báðir hafa þeir Sigurður og Haraldur
reynzt hinir ágætustu menn, hvor í sinni
starfsgrein, og njóta hvarvetna trausts og
Sigurður
Pétursson
skipstjórí
Haraldur
Sigurðsson
vélstjóri
vinsælda allra þeirra, sem eitthvað hafa átt
saman við þá að sælda. Mega þeir, hvor um
sig, teljast sómi sinnar stéttar.
,,Víkingurinn“ þakkar þessum tveimur
mætu frumherjum íslenzkrar farmannastétt-
ar fyrir velunnin störf á liðnum aldarfjórð-
ungi og árnar þeim allra heilla í framtíð-
inni. —
16
VÍKINGUR