Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Blaðsíða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Blaðsíða 16
í Sjómannadagsblaðinu 13 árg. 4. júní 1950., er nefnist „Bátaæfingar og veitingastarfsfólkið“. Að mínu áliti er grein þessi skrifuð í fljót- færni af mjög takmarkaðri þekkingu, með hlið- sjón af vafasömum upplýsingum, og er það undravert, þegar tekið er tillit til þess, að undir- búningur þessarar greinar hefur staðið yfir í rúmt ár. Það virðist sæmilegur tími, til þess, að afla sér réttra upplýsinga; annað er einnig athyglisvert, að allar fengnar upplýsingar eru frá veitingastarfsfólkinu á skipunum, (eins og það er nefnt) en ekki frá sjómönnum. Ég er ekki í neinum vafa um það, að björgun- artæki ýmissa skipa hafa að einhverju leyti verið vanrækt á öllum tímum, en að það eigi við öll skip undantekningarlaust, því neita ég ein- dregið. I síðasta stríði voru flestir sjómenn samtaka um það, að hafa öll björgunartæki í sem beztu lagi, og studdu flestir útgerðarmenn þá við- leitni sjómanna. Mér kemur það einkennilega fyrir sjónir, þar sem greinárhöfundur segir, að margir sjómenn hafi spurt sig um það, hvort ekki sé skylda að hafa bátaæfingar á ákveðnum fresti. Ég hefi aldrei orðið þess var, að sjómenn færu til matsveina eða þjóna, og spyrðu þá um það, hvaða reglur séu í gildi gagnvai't einu eða öðru, sem viðkemur störfum eða eftirliti ofanþilja, þar með talin björgunar- tæki, enda væri það fásinna, vegna þess að störf þessara manna eru á allt öðru sviði og sjómennsku óviðkomandi. Ég ætla að benda greinarhöfundi á það, hvar hægt er að fá réttar upplýsingar um bátaæfing- arr Það er í daga- og eftirlitsbókum skipa. Á þeim skipum, sem ég hefi starfað á, hafa verið hafðar bátaæfingar eiijs oft og kringum- stæður hafa leyft. Einnig eru björgunartæki skipa athuguð um hver áramót af Skipaeftir- liti ríkisins. Ég hefi oft verið með því, að þegar gerðar hafa verið bátaæfingar, þá hafa allir átt að mæta, en þá hefur komið í ljós, að það vantaði hluta af skipshöfninni, og hefur það reynst að vera veitingarfólkið. Þegar spurt hefur verið um það, hvers vegna það mætti ekki, hefur því verið svarað, að það hafi ekki tíma, eða það hefur verið afsakað með öðrum álíka veiga- miklum ástæðum. Ég hefi ekki hugsað mér að mæla með því, sem vanrækt er viðvíkjandi björgunartækjum skipa, en aðeins benda á það, að greinarhöfundur byggir þessa ádeilu sína á mjög vafasömum upplýsingum, ef ekki alröngum. Um seinustu orðin í þessari umræddu grein ætla ég ekki að fjölyrða. Þeim er svo greinilega beint eingöngu að skipstjórunum. Ég hafði ekki ímyndað mér, að Sjómanna- dagsblaðið mundi ljá rúm ádeilugrein einnar stéttar gegn annari, er starfa hlið við hlið á sjónum. Ég hefi ef til vill ekki skilið rétt til- ganginn með þessu blaði, en ég hefi í fáfræði minni hugsað mér hann dálítið annan. Að endingu vil ég benda greinarhöf. á þá staðreynd, að það er mjög varhugavert fyrir menn að ræða eða rita um hluti, sem þeir hafa mjög takmarkaða eða enga þekkingu á. M. H. Afætnr Á sjómannadaginn 4. júní síðastliðinn flutti fulltrúi sjómanna, Henry Hálfdansson, sköru- lega ræðu, sem vakti allmikla athygli. Kom hann víða við og drap á margt, sem öfugt gengur í þjóðfélagi voru. Honum fórust m. a. þannig orð: „Það borgar sig að hálffylla landið af alls konar vélum, sem ekki eru notaðar nema með höppum og glöppum. Það borgar sig að vinna 30 til 40 klukkustundir á viku í skrifstofum og mörgum iðngreinum. Það virðist borga sig enn þá að verzla, þótt kaupmenn segist engar vörur fá, og það borgar sig jafnvel að reka bú með jeppa eða dráttarvél á fimmtu hverja kú, — en það er ekki talið borga sig, þótt fiskimenn- irnir okkar vinni baki brotnu 16 tíma á hverjum sólarhring og þótt skip og vélar þeirra linni ekki látum nótt sem nýtan dag, helga daga og rúmhelga. Þetta er líka að sumu leyti rétt og ég skal segja ykkur af hverju þetta er. Það er vegna þess, að það er búið að hlaða svo miklum af- ætum á sjávarútveginn, að það er engin von, að hann geti borið sig í venjulegu árferði, þegar erfitt er að afla fiskjarins eða afsetja hann. Mér finnst. að forráðamenn þjóðarinnar hafi að undanförnu hagað sér að ýmsu leyti eins og ölvaður maður við akstur, talið sér alla vegi færa, og eina afsökun þeirra verið sú, að þeir hafi verið ölvaðir, sem með þeim óku. Ég veit þó ekki til þess, að sú afsökun hafi dugað neinum bílstjóra, að segja, að farþegarnir hafi líka verið fullir. En rétt er það, að almenningur hefur verið haldinn slíkri ofsavímu, að hann hefur örvað til ógætni og ekki gætt þess, hvert honum hefur verið ekið, og nú erum við öll komin fram á hengiflug og voðinn vís, ef við gáum ekki að okkur“. 152 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.