Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Síða 29
Nordahl Griog: SKIPIÐ SIGLIR SINN SJÓ HiS kunna norska stórskáld, Nordahl Grieg, vakti fyrst á sér verulega athygli meS skáld- sögu sinni, Skibet gar videre, sem út kom í fyrsta sinn 192Ji, en hefir síSan komiS út í milli 10 og 20 útgáfum í Noregi og veriS þýdd á fjöldamörg erlend mál. Grieg fór ungur í siglingar, ekki af atvinnu- nauSsyn, heldur löngun til aS kynnast af eigin raun lífskjörum sjómanna á norska verzlunar- flotnum, mannanna, sem Noregur hefir lengi átt einna mest aS þakka allra þegna sinna. í ,,SkipiS siglir sinn sjó“ lýsir hann af óvenju djörfu raunsæi hversdagslífi þeirra á hafi og í höfn, rótleysi þeirra, einmanleik og heimþrá. Rómantíkin, sem í fyrstu dró marga þeirra aS heiman, hverfur fljótlega fyrir köldum veru- leikanum. Fæstir þeirra hafa kynnzt öSru af heiminum en nokkrum ölkrám og hóruhúsum hafnarbæjanna. Smám saman heltast þeir úr lestinni, einn og einn, deyja af slysförum, eru drepnir í slagsmálum, falla í sjóinn í ölæSi, fyr- irfara sér, verSa eftir i fjarlægum höfnum, gef- ast upp í baráttunni viS meinleg., ósigrandi ör- lög — en skipið heldur áfram, siglir sinn sjó, eins og ekkert hafi gerzt, og nýir menn skríSa inn í kojur þeirra, sem horfiS hafa úr hópnum. Hér birtist fyrsti kafli fyrrnefndrar bókar. I. Skip kemur að landi og nemur staðar stutta hríð á vegferð sinn frá hafi til hafs. Eldarnir undir kötlunum kulna, stimplar vél- arinnar stöðvast, skrúfan tekur nokkra krampa- kennda kippi, svo að sjórinn ólgar og freyðir, eins og þegar deyjandi fiskur slær til sporð- inum. Stýrisvelinum er snúið leiknum höndum, og skipið sígur hægt að hafnarbakkanum. Ótal vírar og kaðlar tjóðra það við bryggjuna, og skipið er á valdi manns og moldar. Skrölt vörubílanna bergmálar frá byrðingn- um, og gatan varpar ryki og skuggum á járn- síðurnar, sem daga og nætur hafa öslað auðn- arlegt úthafið, hlýtt á ástaróð Ránar og glóð. í roða sólarinnar. Nú svellur borgarysinn um skipið. Vindurnar hvína, kranarnir seilast með klærnar niður um lestaropin, hremma bráð sína og kasta henni á land. Hafnarverkamennirnir, sem oi’ðnir eru leggjastuttir og hjólfættir und- an of þungum byrðum, ráða lögum og lofum um borð. En á kvöldin færist kyrrð yfir skipið, og skipverjarnir verða einir eftir við verkalok. En brátt flykkjast þeir í land, borgin hrópar á þá, tortímingin kveður þá til sín með kulda- hlátri. Að áliðinni nóttu slaga þeir um borð með stelpurnar sínar. En aðrir hverfa frá borði með svartan sjópoka á bognu baki, og þeir koma aldrei aftur um borð. Næsta kvöld fer samt jafnfjölmennur hópur til drykkju í landi, því að samtímis koma nýir menn í skörðin, skríða upp í auðu kojurnar og fara á fund sömu kvenna og þeir, sem gengu í land og gleymdust. Þannig á þetta að vera, lífið getur ekki beðið. Dagarnir líða gráir og þreytandi, þangað til skipið heldur aftur úr höfn. Eitt kvöldið stendur ungur piltur í myrkrinu á bryggjunni, nýr maður, sem ekkert þekkir. Hann starir á járnheiminn, sem fram undan rís og spyr undrandi: „Hvað geymir þetta skip, hvað er það?“ Og hann hugsar sér það þannig: Það er vöruskemma, sem flýtur milli hafna og stundum upp að fögrum ströndum, það er mannfélag með dimmum gjótum og gjám, en einnig fagurtypptum fjöllum, er hefja kollinn upp í morgunroðann. Það er molok, sem bryður mannlega giftu milli járnskoltanna og snýr síðan ásýnd sinni rólega móti einmanleikanum, eins og ekkert hafi gerzt. Skipið er þetta allt og þúsund sinnum fleira, og hann þráir það og óttast. Að baki hans blikar ljósahaf borgarinnar, og eitt þessara ljósa er honum einstaklega kært. En framundan gnæfir skipið þögult og dimmt eins og dauðinn. Borgin og skipið — honum V í K I N □ U R 165

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.