Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Síða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Síða 5
Vinalegt og glæsilegt var fyrsta skip félagins „Gullfoss“. Sigurður Pétursson, ástsæll maður, hafði skips- stjórn á „Gullfossi“ á hendi öll árin, sem skipið þjónaði íslendingum — samtals 25 ár. voru Sameinaða gufuskipafélag- inu skárust úr leik. Benti Bjarni frá Vogi á, að hægt væri að stofna skipafélag með innlendri hlutafjársöfnun, og gæti lands- stjórnin verið hluthafi í fyrir- tækinu. Tillaga um þetta kom fram á þinginu 1912 og var samþykkt í neðri deild. í efri deild var mál- ið tekið af dagskrá og þar dag- aði það uppi. Má segja að ekki hafi komið mikill styrkur frá alþingi um stofnun innlends skipafélags. Þrátt fyrir þetta báru marg- ir einstaklingar brennandi á- huga í brjósti fyrir stofnun innlends skipafélags. Sveinn heitinn Björnsson, síð- ar forseti Islands, kynnti sér skiparekstur og hafði samvinnu við merkan skipstjóra Thorefé- lagsins, Emil Nielsen. Seint um haustið 1912 hóf Sveinn umræð- ur við áhrifamenn um stofnun eimskipafélags. Ræddi hann við Björn Kristjánsson, Ludvig Kaaber, Garðar Gíslason og Thor Jensen. Allir voru einhuga að reyna þessa hugmynd, en var jafnframt ljóst, að nauðsyn væri á því að fá hæfan mann sem framkvæmdastjóra fyrir fyrir- tækið. Kom þeim saman um að fá Emil Nielsen skipstjóra sem framkvæmdastjóra, enda var hann þaulkunnugur skiparekstri og mikill dugnaðarmaður. Var nú unnið að því að fá fleiri menn í liðið. Of langtmál er að telja þá alla upp hér. Þó má geta Eggerts Claessens, sem átti uppástunguna að því, að fé- lagið var kallað Eimskipaféiag Islands. Bráðabirgðastjórn var komið á laggirnar, skyldi hún útbúa hlutafjársöfnunina. Hafði áður verið gerð kostnaðar- og rekstraráætlun tveggja skipa. — Taldi undirbúningsnefndin æski- legast að byrja strax með tveimur skipum. Átti annað að sigla milli útlanda og Reykja- víkur og fara síðan vestur og norður. Hitt skipið átti að sigla til útlanda, og koma upp á Framh. á bls. 75. Kristján Aðalsteinsson, Flaggskip íslenzka flotans, „Gullfoss" hinn yngri. skipstjóri á Gullfossi. VÍKINGUR 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.