Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 5
Péturs Jónssonar. Hann var því rúmra 22ja ára er hann lézt. ■— Snemma fór hann á sjóinn. Þar haslaði hanrí sér völl og var lið- tækur maður. Ætlaði sér stund- um ekki af, enda gekk hann að verki einhuga. Hann var kvænt- ur Sæbjörgu Guðbjartsdóttur og áttu þau tvo syni. Þau bjuggu í Stykkishólmi. JÓN SIGURÐSSON var Aust- firðingur, en kom hingað vestur árið 1964, þá til sjóróðra. Hann var fæddur 7. apríl 1947 og því rúmlega 21 árs að aldri. Foreldr- ar hans voru Árný Reimarsdóttir og Sigurður Albertsson. Hann lætur eftir sig unnustu, Júliönu Gestsdóttur og eitt barn. Þau höfðu nýlega komið sér upp snyrtilegu heimili í Stykkishólmi og allt virtist blasa við á hinn ákj ósanlegasta veg. GUNNAR ÞÓRHARSON var Breiðfirðingur. Foreldrar hans voru Þorbjörg Sigurðardóttir og Þórður Benjamínsson, sem lengst af bjuggu í Hergilsey. Þau eiga nú um sárt að binda. En eldur minninganna vakir. Við þann eld verma ástvinir sér, geyma minningar um vaska sjó- menn. Þeir voru á heimleið til að draga björg í bú. Annar máttur sneri þeim heim. Það koma mörg spurningarmerki í hugann, en hvað um það. Trúin segir heilög Iiöndin hnýtir aftur slitinn þráð og við trúum því að handleiðsla drottins sé það eina sem verulegt gildi hefir í lífinu. í þeirri trú eru þessir góðu drengir kvaddir. Sálmurinn segir: Ég er á langferð um lífsins haf ofj löngwm. breytinga kenni, mér stefnu frelsarinn góði gaf ég glaSur fer eftir henni. Blessuð sé minning hinna vösku sjómanna. Á. H. Hreinn Pétursson. Gunnnr Þórðarson. Jón SiguriVsson. Dagný SF 61. VtKINGUR 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.