Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Síða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Síða 9
VÍKINGUR 53 ekki hreyft okkur. Hann var skollinn á. Frost var að harðna svo við sóttum mótorinn og bárum í hús. Gott var að koma í hús, því væt- an var nú farinn að segja til sín í vaxandi frosti og veðurhæð. Kaffið var komið á borðið. Jóhann var að tala við skip- herrann í talstöðinni. Sagði skip- herrann honum, að nú væri hann farinn að mæla 8 metra öldur á dýptarmælinn, en skipið lá mjög skammt undan, þar sem aldan var farin að rísa til muna. Ljósin voru nú farin að dofna á skipinu í vaxandi sortanum. Við gátum T.v. Kristján Sveinsson, fyrrv. stýrimaður á vitaskipinu „Árvak.“ T.h. Jóhann Péturssim vitavörður. Myndin er tekin í lendingu fyrir framan Hornbjargsvita af Guðm. Hallvarðssyni stýrimanni. Fyllti bátinn hjá okkur á útleið- inni, en út komumst við. Síðan hef ég ekki talið sundið fært í verra. Hér varð því ekki aðgert í bili. Bárum við nú sína byrðina hvert upp klettinn, var það megn- ið af farangrinum. Heima á verk- stæði tókum við Benóný verkfæri og fórum í fjöruna, því við vor- um minna blautir en Sigurbjörn. Eftir nokkrar mínútur var mótor- inn kominn í lag. Fór hann í gang á fyrsta snúning. Við vorum til- búnir, en sundið var kolófært. Veðrið óx stöðugt. Braut nú orð- ið framan við sundið. Þó við kæmumst fram úr sundinu mund- um við ekki ráða við brotin framan við það, því þar rísa þau mest. Nú var háflóð og því ekki vonlaust, að sundið lagaðist á fjörunni ef veðrið færi ekki vax- andi. Fórum við því heim í vita. Slysavarnardeildarmciin frá ísafirð'i hera efni úr fjöru að uppsetningastað skýlisins. Nú varð Þór að forða sér, því hann var farinn að draga akker- ið. Hann kvaddi, því augljóst var, hvað var að ske. Hann var skoll- inn á með norðaustan báli. Heimafólk kannaði nú feng sinn. Ljósavélin fékk kolin sín. Það mundi ekki verða myrkur í Látravík að sinni. Móðirin og drengirnir fengu jólagjafir að sunnan. Mikil hrifning var hjá drengjunum, þeir fengu stóra flugvél og bíl. Heilmikið var af jólapósti í póstpokanum og Jó- hann fékk nokkrar bækur frá vin- um að sunnan. Við drukkum kaffi og töluðum um bylinn. Skyldi hann verða langur. Bux- urnar þornuðu í hlutfalli við fjölda kaffibollanna. — Við sát- um nú að samtali góða stund. LJti var glórulaus bylur. — Loks var staðið upp og farið í fjöruna. Bát- inn drógum við að stiganum, sem liggur upp klettinn, þar sem slétt- lendið með byggingunum tekur við. Bátnum var hvolft og hann bundinn rammlega við neðsta hluta stigans. Þegar heim var komið fórum við að glettast um væntanlega dvöl okkar að Horni. Ég sagðist endilega þurfa að vera

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.