Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 11
Daníel í Slysavarnardeildinni á ísafirði fer með vistir í slysavarnarskýlið á Slétteyri ásamt öðrum slysavarnardeildannanni, ættuðuin af Hornströnduin, en Strandainenn eru margir í björgunarsveitunum. lenzkar bækur eru þar í fyrir- rúmi og Guðbrandsbiblía er á sér- stöku borði í aðalbókaherberginu. Svo sem Jóhanni er eðlilegt, les hann mikið um heimspeki, þjóð- leg fræði og klassísk ritverk, bæði leikrit, ljóð og óbundið mál. Þegar setið er og rætt við Jóhann, er lífsspurningin alltaf í fyrir- rúmi. — Hver er uppbygging mannsandans. Hvert stefnir and- leg tilvist manna, og hvað leynist í huldum djúpum hverrar manns- sálar, og hvernig speglast undir- djúp sálarlífsins í óvituðum við- brögðum á yfirborði hvers ein- staklings. Þegar Jóhann er í samræðum, blandast saman ótrúleg þekking hans á sögu mannsandans og sál- f ræðilegum s j óndeildarhringum úr þróunarsögunni ásamt stór- brotnum einkaskoðunum hans, sem þroskast hafa í sérstakan stíl við margbreytilegalífsreynslu og könnun eigin sálarlífs, sem er Jóhanni sífelld uppspretta nýrra leiða, til að kanna sálardjúp ann- arra manna. í samræðum við Jó- hann stafar frá honum sérstakur blær umburðarlyndis og samúða með mannfólkinu. Honum er ríkt að miðla öðrum, hvort heldur er þekking, hjálp eða skilningur á eigin vandamálum. Þessi sérstöku einkenni Jóhanns virðast stafa af ótrúlegri rækt, sem hann hefur lagt við könnun eigin persónu. Einn ljóður er að vísu á ráði Jó- hanns. Hann kann ekki að þiggja af öðrum. Hefur ef til vill ekki mikla æfingu í því, en velferð manna mun þó bezt borgið ef all- ir hlutir eru í góðu samræmi, svo sálinni verði ekki íþyngt með ó- samræmi. Þegar Jóhann hefur samræmt þetta einkenni sinni þroskuðu sál, mun hann ekki eiga möi'g fleiri björg óklifin á lífs- leiðinni. Eftir viðkynningu við Jóhann skilja sjómennirnir betur, hvern- ig hann rækir starf sitt sem vita- vörður. Sjómönnunum varð þetta þó ljósast, þegar ísinn lagðist að landinu og teppti siglingar. Úr vitanum sér Jóhann langt út yfir siglingaleið frá Hornbjargi og til austurs. Hlaupi hann upp á Axar- fjall, ofan við vitann í 285 metra hæð, þá verður hafsbrúnin í 85 sjómílna fjarlægð. Jóhann var óþreytandi við að leiðbeina skipum eftir vökunum, sem þau gátu ekki fundið sjálf vegna þess, hve skammt þau sáu sjálf. Þegar skipin komust í fest- ur, hvatti Jóhann menn til að troða sér að næstu vök, sem hann einn sá, og gat hann þannig hald- ið skipunum gangandi ótrúlega mikið. Oft sá Jóhann út leiðir, Jóhann vitavörður á Horni heldur upp á Axarfjull með talstöðina á bakinu. Með henni beinir hann skipuni gegnum ísvakir, scin hann sér af fjallinu. VlKINGUR 55

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.