Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Qupperneq 16
Eins og getið hefir verið hér að framan, hefir stærð og gerð hvers skips, svo og hleðsla þess og sigling mjög mikil áhrif á magn ísingarinnar. Ef veðurstofur eiga að geta gefið spár yfir stig ísing- ar á ýmsum hafsvæðum, um leið og veðurspár eru gefnar út, þá verður raunverulega að miða slíka ísingarspá við ákveðna stærð og gerð „standard- skips,“ t.d. 1000 brl. að stærð. Staðsetja verður ís- mælingartækin ávallt á sömu stöðum um borð í slíku ísingar-rannsóknarskipi. Ennþá hefir ekki verið aflað nægjanlega mikilla rannsóknarniður- staða, til að hægt sé að nota sem tölulegan grund- völl, því þessar mælingar þurfa að skiptast í marga flokka miðað við mismunandi hraða skipsins og siglingarstefnu þess miðað við vindátt. Það er því rétt að hafa hugfast, að ísingarspár verða að miðast við ákveðið ,,standard-skip,“ákveð- inn siglingahraða og ákveðna stefnu miðað við vindátt. Til að skipstjórar annarra skipa geti haft not af þessum ísingarspám, vei’ða þeir að bera saman ísingarhættu eigin skips við „standard- skipið,“ siglingarstefnu þess og hraða. Þetta mætti að fenginni reynslu eflaust gera með línuriti eða þá með því að margfalda með ákveðinni tölu, til minnkunar eða aukningar á ísingarhættu miðað við ísingu „standard-skipsins." Til að kanna þetta mál nánar, væri mjög æski- legt að gerðar yrðu ísingarmælingar á ýmsum öðr- um stærðum og gerðum skipa, en þessu „standard- skipi,“ og þá helzt gerður beinn samanburður þeirra mælinga og mælinga á standard-skipa-ísing- unni. Hér væri líka hægt að styðjast að nokkru við tilraunir með skipslíkön. Að lokum mætti svo búa til línurit yfir ýmsar stærðir og gerðir fiskiskipa, þar sem beint mætti lesa af tölu til að umreikna ísingarhættuna, sem i ísingarspám veðurstofanna yrði miðuð við ,,standard-skip,“ og finna þannig ísingarhættu þess skips, sem þörf er á hverju sinni. Hlutverk veðurstofanna yrði þá að gera spá yfir ísingarhættu, sem byggð er á veðurfræðilegu og haffræðilegu ástandi, sem líkur væru fyrir að yrðu á umræddu hafsvæði það tímabil, sem spáin næði til. Yrði þá spáin miðuð við að líkur væru fyrir engri ísingu, lítilli, talsverðri eða mikilli, eða þá síðar e.t.v. töluleg upplýsing miðað við „standard- skipið.“ Um borð í öðrum skipum væru þá til um- reikningartöflur eða línurit, sem gæfi til kynna ís- ingarhættuna á því skipi miðað við „standard- skipið.“ Tölulegar upplýsingar eru nauðsynlegar til að liægt sé að gera samanburðarútreikninga á ísmynd- un ýmsra stærða og gerða skipa. Þessum árangri verður væntanlega ekki náð fullkomlega á annan hátt en þann, að mörgum ísmælitækjum verði kom- ið fyrir á sem líkustum stöðum á sem flestum stærðum og gerðum tilraunaskipa, og árangri allra þessara tilrauna safnað saman í eina heildarrann- sókn á ísingu skipa. Hér er um að ræða víðtækari rannsóknir en vænta má að verði gei’ðar alveg á næstunni. Hinsvegar er mikilvægt að gera sem fyrst það, sem hægt er að gera nú þegar til að að- vara sjófarendur, og þá einkum fiskiskipin, við ís- ingarhættu. Þessvegna er rétt að gera hér að um- talsefni ísingarspár íslenzku veðurstofunnar, sem teknar hafa verið upp nú í vetur. 2. ísingarspár meS veöurspám. Isingarspár íslenzku veðurstofunnar styðjast við línurit þau, sem Dr. Hans Otto Mertins, í Sjávar- deild þýzku veðurstofunnar, birti með grein sinn í „Der Wetterlotse," no. 248/49, 1967. Greinin er þýdd og birt í tímaritinu VEÐRIÐ, 2. hefti, 1968. (4). 6-7 Vindstiy 8 V i h d s t i y Slig isitigar: lilil = 1—1 < m <i 21 klsl. Idlwrii) (,,t (l -'i klsl. wihil 7 II < in <i 2J^ klsl. injiig mihil I‘i <m <i 21 klsl. 3. mynd. Línurit til að áætla ísingu á skipum á hxgri ferð. 60 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.