Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Qupperneq 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Qupperneq 20
á því, að ísing var orsök þess slyss. Togarinn Þor- kell Máni var þar líka hætt kominn, vegna ísingar, og margir aðrir togarar, þar á meðal þýzkir, börð- ust einnig við óveður, ísrek og þó einkum mikla ísingu. Eftir heimkomu íslenzku togaranna af Ný- fundnalandsmiðunum voru að sjálfsögðu haldin sjópróf til að kanna allar aðstæður og atvik. Þessi sjópróf reyndust á margan hátt mjög lærdómsrík, því reynslan hefir sýnt, að það er sjaldan nokkur til frásagnar eftir að ísing er orðin eins mikil og þessa örlagaríku febrúardaga árið 1959. ísingarhættunni verður því varla lýst betur, en með því að líta í fáorðan útdrátt úr dagbók b/v Þorkels Mána: „Laugardagur 7. febrúar 1959. Staður skipsins Nýfundnalandsmið.Togað fram eftir degi. Kl. 15.oo vaxandi NV. vindur. Lónað við að láta niður. Veð- ur fór nú ört vaxandi, lestum lokað og þilfar gert sjóklárt, að svo miklu leyti, sem hægt var. Lónað upp í sjó og vind. Veður NV. 11, sjór 10. Bylur og frost. Sunnudagur 8. febrúar 1959. Staður skipsins Nýfundnalandsmið. Lónað upp í sjó og vind. Veð- ur NV. 11, sjór 10. Bylur og frost. Skipið nú orðið all máttlaust í lireyfingum, og um kl. 5.30 fékk skipið mikinn b.b. halla og lá þannig. Var nú b.b. björgunarbátnum sleppt fyrir borð. Eftir það réttir skipið sig. Nokkru síðar fer skipið að hallast til stb. og var stb. bát sleppt. Var nú skipið rétt um stund. Jafn snemma þessu gerðum við okkur ljóst, að ísing hlóðst ört á skipið, og voru nú allir kallaðir út, til að berja klaka. Skipverjar hófust nú handa og börðu klaka með þeim verkfærum, sem tiltækileg voru, úr framreiða, hvalbak, stjórnpalli og bátaþilfari. Þrátt fyrir stöðugan klakabaraing hallaðist skipið oft hættulega mikið, ýmist á b.b. eða stb. Um kl. 11 reið sjór framyfir skipið, sem olli því að II. stýrim., Sigurður Kolbeinsson, fékk slæmt högg á bakið og missti meðvitund um stund, en hann var ásamt 4 öðrum mönnum að berja klaka af hvalbak. Var hann síðan borinn niður í háseta- klefa og búið um hann þar eftir föngum. Þar sem skipið hallaðist oft hættulega, svo sem að framan getur, var nú horfið að því ráði að logskera allar bátsuglur í sundur og henda fyrir borð. Tókst það furðu fljótt og vel, miðað við aðstæður. Var nú greinileg breyting á skipinu til batnaðar. Stöðugt var haldið áfram að berja klaka. Þess skal getið, að um kl. 08.30 taldist svo til milli skipstjórans og loftskeytamannsins, að rétt væri að láta nálæg skip vita, að við ættum í nokkrum erfiðleikum, og að okkur mundi þykja vænt um, þótt ekki væri annað en að sjá ljós, eins og skipstjórinn orðaði það. Svör bárust frá Júní, Marz og Bjarna Ridd- ara, og töldu tveir hinir síðar nefndu sig mundu 64 freista þess að halda í áttina til okkar, en erfitt var um vik, því miðanir reyndust árangurslausar vegna klaka, og bylur var á. Stöðugt var haldið áfram að berja klaka allan daginn, og gekk nú mun betur að halda skipinu réttu. Þess skal getið, að samtímis því, er björgunarbátunum var sleppt, var öllu laus- legu, sem var á þilfari, bátaþilfari og vélareisn hent fyrir borð, svo sem fiskikössum, olíutunnum o. fl., því allt þetta safnaði á sig klaka og olli yfir- vigt. Um kvöldið átti skipstjórinn á Þorkeli Mána viðtal við skipstjórann á Marz. Bárum við nú sam- an bækurnar um það, hver staða skipanna mundi verða, og í því sambandi studdumst við við Loran- miðun frá einni stöð og dýpi. Ekki báru þessar at- huganir neinn árangur, því ekki reyndist fært að ákveða fjarlægð eða stefnu milli skipanna. Taldi ég nú hættuna minni en áður, þar sem skipið lagði sig aldrei eins djúpt eftir að bátsuglurnar fóru, og gat ég þess við skipstjórann á Marz. Unnið var stöðugt að klakabarningi fram yfir miðnætti, en þá var gert nokkuð hlé á til að hvíla mennina, enda hafði nú dregið nokkuð úr veðri. Mánudagur 9. febrúar 1959. Nokkru fyrir birt- ingu sýndi það sig að skipið hafði enn safnað á sig all miklum klaka, og var nú orðið mun máttlaus- ara, en þegar klakabarningu var hætt um nóttina. Voru nú allir kallaðir út í skyndi, og hafin hörð hríð að klakanum, þar sem búast mætti við vaxandi stormi, þegar kæmi fram á daginn, eftir veður- fregnum að dæma. Um þetta leyti kallaði Marz í Þorkel Mána, og spurðist fyrir um það, hvort við sæum ljós og reyndist svo vera, og var þar þá kom- inn Marz. Áttum við nú samtal saman, og tjáði ég honum, að klakinn hefði aukizt þá um nóttina, en við værum að berja hann. Spurði þá skipstjórinn á Marz, hvort við hefðum tilbúna gúmmíbjörgunai-- bátana, en ég tjáði honurn, að svo alvarlega væri ég ekki farinn að hugsa enn. Kvaðst nú skipstjór- inn á Marz mundi halda sig hjá okkur, og kunni ég honum að sjálfsögðu mikið þakklæti fyrir það, og taldi ég mun skemmtilegra fyrir okkur, þó ekki væri annað en sjá skip. Þriðjúdagur 10. febrúar 1959. Staður skipsins Nýfundnalandsmið. Veður NV 6, sjór 6, él. Stöðugt unnið að klakabarningu. Marz lónar með okkur. Kl. 04.50 sett á fulla ferð áleiðis til Reykjavíkur. St. 122° mv. — Marteinn Jónsson, skipstjóri." Þessa dagana voru á Nýfundnalandsmiðunum þessir íslenzku togarar: Harðbakur, Júní, Júlí, Bjarni Riddari, Austfirðingur, Marz, Þorkell Máni og Gerpir, en togarinn Norðlendingur var að koma á miðin þegar óveðrið skall á. Skipin munu öll hafa hætt veiðum um kl. 17—19 á laugardaginn 7. febr. 1959, og ekki hafið veiðar aftur. Togararnir Marz og Þorkell Máni munu liafa verið síðustu íslenzku VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.