Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 22
Verða kaupskip ekki lengur í notkun en til ársms 2000? Mikil breyting hefur átt sér stað í þróun skipanna síðustu tíu árin. Einkum er þróunin ör á sviði olíuflutningaskipa og svo- kallaðra containerskipa. Margur hefur því lagt niður fyrir sér að íhuga, hvernig skip- in verði eftir 100 ára tímabil. Sturmey prófessor við Lan- caster háskólann hefur birt íhug- anir sínar á þessu sviði í hátíða- blaði skipafélags, sem nýlega átti 100 ára afmæli. Nýtt eldsneyti. Sturmey heldur því fram að eftir 100 ár verði engin kaup- skip til að undanteknum nokkr- um kornflutningaskipum og beitisnekkjum. Þróunin fram til ársins 2000 mun einkennast af stöðugt stækk- andi skipum á sviði olíu og vöru- flutninga; en þá mun þörfin fyrir olíuflutningaskip alveg hverfa vegna notkunar á nýju eldsneyti. Samtímis mun fjöldi gerfiefna vera kominn í notkun, sem minnkar þörfina fyrir málm- og stálflutninga. Tilkoma kjarnorkuskipanna mun valda því, að vöruflutningar yfir höfin munu fara fram á þann hátt, að stórir dráttarbát- ar kjarnorkuknúðir munu draga á eftir sér stóra pramma, sem hafa vörurnar innanborðs. Risaflugvélar. Sturmey álítur, að stutt sé í það að stykkjaflutningur hverfi úr sjóflutningum. Verði þróunin sú fyrst að sérstök skip útbúin þar til muni flytja sérstaka gerð stykkjaflutninga i svonefndum kössum, containers. Þetta fyrir- komulag mun svo verða flutt yfir til risaflugvéla, sem þegar í byrj- un 21. aldarinnar verða komnar í notkun. Slíkar flugvélar munu geta borið mörg þúsund tonn og þurfa sjaldnast að lenda, heldur munu þær ferma og afferma vörurnar svífandi á loftpúða rétt ofan við yfirborð jarðarinn- ar. Á skipatæknisviðinii gerir Sturmey ekki ráð fyrir neitt stórstígum framförum. Hann heldur því fram að þau fáu skip, Eitt stærsta skip Dana „Dircli Mærsk“ 200000 tonn að stærð. Vélaraíl skipsins er 28000 liestafla einhverfill. VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.