Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Síða 23
Vélin heitir Canadair CL—44 os notuA' til flutninga.
sem til verða eftir 100 ár, muni
sigla um höfin mannlaus og los-
un og ferming muni framkvæmd
algerlega á vélrænan hátt.
Reyndar er þetta nú hægt að
gera en af öðrum ástæðum ekki
komið í gagnið.
Sturmey telur, að skipin, sem
enn verða smíðuð, muni gerð úr
léttara efni og að vöruflutning-
arnir einkennist af stærra rúm-
máli með meiri léttleika.
Prófessorinn er ekkert að
velta því fyrir sér, hvort skipin
munu taka á sig annað skrokklag
eða annars konar farartæki verði
til.
Slíkt telur hann gagnslausa
íhugun, þar eð flutningar munu
fara fram með flugvélum eða
öðrum tækjum, er þær leysa af
hólmi, en alls ekki eftir sjóleið-
um.
Hægt væri að láta í léttu rúmi
liggja athugasemdir Sturmeys,
ef hér væri ekki um mann að
ræða, sem ritað hefur á umliðn-
um árum mikið um skiparekst-
ur af mikilli skynsemi.
Japanir Ieiðandi í siglingum.
Sturmey prófessor telur, að
Japanir verði næstir á eftir
Bretum sem leiðandi aðilar í
skiparekstri.
Japanir hafa nú þá aðstöðu
vegna voldugs skipaiðnaðar
þeirra að smíða 50% af heims-
flotanum. Þá þurfa þeir sjálfir
á miklum flota að halda vegna
örar iðnþróunar landsins og sér-
stöðu sem eyþjóðar.
Japanir eru einnig mjög metn-
aðargjarnir, og hafa stjórnvöld
þai’ í landi sett sér markmiðið
að gera Japani frumkvöðla á
sviði skiparekstrar.
Nokkur atriði virðast þó ger-a
framsetningu Sturmeys dálítið
vafasama.
Til dæmis eru flutningar
þungra og fyrirferðarmikilla
hluta langsamlega ódýrastir eftir
sjóleiðinni og ekkert bendir til
þess, að framþróun þar geti ekki
átt sér stað, er geri flutningana
enn ódýrari.
VÍICINGUR
Nýir markaðir fyrir
sjóflutninga.
Ef þessar hugmyndir verða nú
raunverulega að veruleika, að
flest í heimi hér verði vélrænt, þá
hlýtur að vera geysilegur frí-
tími, sem fellur öllum mönnum
í skaut.
Myndi þá ekki aukast áhugi
fyrir því að dunda við smiði og
rekstur lystibáta og skemmti-
ferðaskipa.
Frli. á bls. 72
Hér gcfur að líta inn í farrýini liandarískrar flutningavélar.
67