Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 25
Hin eina rétta lausn I dönskum smábæ voru bæjarfull- trúar sammála um að leg-gja hunda- skatt á íbúana. Á fundi spunnust miklar umræður um það, hvernig hundaskattinum skyldi varið. Þegar enginn niðurstaða virtist finnanleg, reis aldursforseti fulltrúanna úr sæti sínu, og kom með eftirfarandi tillögu: „Ég legg til að þessum skatti verði deilt jafnt niður á alla hundaeigendur." Tiilagan var samþykkt í einu hljóði! * „Nei, heyrðu nú, María“, sagði frú- in. „Þetta er ekki sami hermaðurinn, sem ég hef séð hér áður. Ég hélt það væri unnustinn þinn“. „Nei, þessi er í varaliðinu Landsprófsstíll“. í rafmagnsfræðinni er spennan kölluð volt, eftir Voltaire, sem fanm upp rafmagnið. — | Filistear var ættflokkur frá biblíu- tímanum, sem Samson barðist við. Columbia var gift Columbusi, sem fann Ameríku. Senor kallast maður, sem er giftur senoritu. Betlari stóð á götuhorni og hélt á hatti í annarri hendinni og húfu í hinni. Vegfarandi nam staðar og spurði hverju þetta sætti. „Jú“, svaraði betlarinn glaðlega. „Fyrirtækið gekk það vel, að ég opnaði útibú!“ * Frá Prag: Hvaða þjóð er sú hlutlausasta í heimi? Svar: Það eru Tékkar, það er sú eina þjóð, sem ekki skiptir sér af eigin málefnum. * Það er fullyrt, að læknavísindin iiafi tekið slíkum framförum uppá síð- kastið, að brátt komi að því, að ekki verði hægt að finna nokkra heilbrigða manneskju! * Fanginn var nýseztur í rafmagns- stólinn, og prestur var viðstaddur til að iiughreysta hann: „Er nokkuð, sem ég get fyrir yður gert vinur minn, VlKINGUR áður en þér kveðjið þennan heim.?“ „Jú, prestur minn; vilduð þér ekki halda í hendina á mér, þegar straumn- um verður hleypt á! * „Lítið á þetta glas,“ sagði efna- fræðiprófessorinn. „Það inniheldur eitt sterkasta eiturefni, sem til er. — Smádropi á Kattartungu nægir til að drepa fullhraustan mann!“ * „Voruð það þér, sem klipptuð mig, þegar ég var hér síðast", spurði síð- hærður unglingur, sem stakk höfðinu inn í rakarastofu. „Nei“, svaraði rakarinn, „ég hef að- eins unnið hér í þrjú ár!“ * Það var á mesta umferðatíma dagsins. Eldri kona gekk út í um- ferðina þrátt fyrir upprétta hendi lögregluþjónsins. „Stopp!“ hrópaði hann. „Vitið þér ekki hvað upprétt hönd þýðir?“ „Það skyldi ég halda, ég hefi ver- ið kennslukona í 40 ár.“ * Gdmall vandi, — og nýr! Þegar Lúðvík konungur fjórtándi setti menn í embætti, var hann vanur að segja: „Nú hef ég gert níutíu og níu menn óánægða og einn vanþakklátan! * „Hann Óli segir, að ég sé fallegasta og bezta stúlkan í heiminum. Ætti ég að giftast honum “ „Nei, gerðu það ekki, lofaðu honum að lifa áfram í trúnni." — Hann sagði, að ég liti svo seiðandi út í tunglskininu. — Hvað meinti hann með því? — Ég veit það ekki, en ég rak hon- um utanundir svona til vonar og vara. * - „Hvernig kynntust þér manninum yðar?“ „Hann var sölumaður í búsáhöld- um og þegar ég sá hversu leikinn hann var í notkun þeirra, taldi ég að hann væri einmitt rétti maður- inn fyrir mig.“ — l>a'ð einkennilega við svejninn er að manni finnst maður þurfa að sofa meira daginn eftir, heldur en kvöldið áður. Ung stúlka kom til tannlæknis til að fá dregna úr sér tönn. Þegar hún settist í stólinn varð hún stíf af hræðslu og beit tönnunum saman. „Það er ekkert að óttast", sagði tannlæknirinn. „Slappið bara af.“ „Ó, ég held bara að ég kjósi heldur að eignast barn heldvir en að láta draga úr mér tönn!“ „Já, þá verðið þér að ákveða, hvað ég á að gera fyrir yður!“ * Læknirinn minn er á Kanaríeyjum, tannlæknirinn minn er á eyni Rhodos, hárgreiðsludaman á Mallorca, hús- hjálpin er í Skotlandi...... Það er erfitt að vera án þeirra, en það hefur þó þann kostinn, að ef þau verða nógu lengi í burtu, gæti ég og maðurinn minn kannski leyft okkur að skreppa eitthvað upp í sveit í nokk- urra daga sumarfrí! * — Við sjáum, að hjarta mannsins er stærra en konunnar, sagði prófess- orinn við læknastúdínu. — Hvaða á- lyktun drögum við af því? — Að það er ekki stærð hjartans, sem ræður, heldur gæðin! 69

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.