Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Síða 27
Björgvin Villijálmsson. „Tvistur“ 12,92 tonn. Smíðaður í Noregi. Björgvin Vilhjálmsson var fæddur í Borgarfirði Eystra 30. ágúst 1897. Foreldrar: Vilhjálm- ur Stefánsson og kona hans Sól- veig Guðmundsdóttir. Björgvin ólst upp með foreldrum sínum í Borgarfirði, en 17 ára gamall fór hann fyrst til Vestmannaeyja og vann við hafnargerðina þar, en stundaði síðan sjómennsku á m.b. Gammi og fleiri bátum, og kaupir síðar hlut í m.b. Stakkarfoss og var á honum nokkur úthöld og selur hann síðar og verður sjó- maður á v.b. „Freyju" hjá Hann- esi Hannessyni á Hvoli og er með honum í mörg úthöld. — For- mennsku byrjar Björgvin á m.b. ,,Tvist“ 1932 og hafði for- mennsku á honum í nokkur út- höld. Síðan á „Stakkarfoss.“ Upp úr því flytur Björgvin til Glett- inganess og gerist þar vitavörður og hætti því síðar og flutti sig í Borgarfjörð Eystra, en stundaði Frh. á bls. 72 „Gylfi“ 6,00 tonn. Smíðaður í Vestm. 1919. Friðfinnur Finnsson, Odd- geirshólum er fæddur að Stóru- borg undir Eyjafjöllum 22. des. 1901. Foreldrar Finnur Sigur- finnsson og kona hans Ólöf Þórð- ardóttir er þar bjuggu. Faðir Friðfinns drukknaði við Eyjar 1901 er 27 manns drukknuðu með Birni Sigurðssyni frá Skarðshlíð. Friðfinnur var með móður sinni þar til hann var tveggja ára, síð- ar var hann í Drangshlíð til 5 ára aldurs. Eftir það fór hann að Brekkuhúsi og var þar til 24 ára aldurs með hjónunum Sigur- björgu Sigurðardóttur og Sigurði Sveinbjörnssyni er þar bjuggu. Ungur byrjaði Friðfinnur að stunda sjó og réri m.a. úr Klauf útræði á Suður Heimaey með Oddgeiri Guðmundssyni, sóknar- presti. Á vertíð réri hann með Árna Finnbogasyni á „Helgu“ og síðar vélamaður á „Sísí“ með sama formanni og fylgdust þeir Frli. á bls. 88 „Herjólfur44 22,00 tonn. Siníóaóiir í Danmörku 1928. Einar Jóelsson, Sælundi var fæddur að Sælundi, Vestmanna- eyjum 18. apríl 1912. Foreldrar Jóel Eyjólfsson og kona hans Oktovía Einarsdóttir. Einar ólst upp með foreldrum sínum. Hann byrjaði sjómennsku á unga aldri á „Lunda“ með Þor- geiri bróður snum. Einar tók mótorvélstjórapróf og var véla- maður um árabil á ýmsum bát- um. Síðar aflaði hann sér skip- stjóraréttinda og tók þá við for- mennsku á v.b. „Ingólfi," það var 1942. Eftir það var Einar með „Herjólf,“ „Þrist“ og „Skaftfell- ing.“ En hann hætti eftir það for- mennsku. Eftir á hvarf hann til sinnar fyrri stöðu og var nú vél- stjóri. Einar var hið mesta lipur- menni og með allra mestu sjó- mönnum. Hann var fjallamaður eins og margir Eyjamenn og einn af beztu fimleikamönnum Eyj- anna á sinni tíð. Sjómennskan Frh. á hls. 72 VÍKINGUR 71

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.