Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 29
JON OLAFSSON: Getum við uuhið KAUPSKIPAFLOT ANN ? Nú hefur einum ágætum Al- þingismanni dottið það snjallræði í hug að Islendingar gætu notað sjóinn til annars en að draga úr honurn fisk. Sem sé að sigla á honum með vörur fyrir erlenda aðila. Það væri betur að þessum möguleika hefði fyrr verið gaum- ur gefinn, því hætt er við að við séum búnir að missa af strætis- vagninum þarna eins og annars staðar. Samkeppni milli skipafélaga um flutninga á heimshöfunum er geysihörð og ekki auðhlaupið fyrir aðila sem litla reynslu hafa í slíkum flutningum að komast þar að. Viturlegast væri því að byrja slíkar siglingar í einhvers konar samvinnu við erlend skipa- félög. 1 því sambandi er vert að líta á samvinnu bandarísks skipa- félags og norsks skipaeiganda, sem í stórum dráttum mun vera þannig, að bandaríska skipafé- lagið greiðir Norðmanninum á- kveðna upphæð á mánuði fyrir að sjá um rekstur skipanna (manna- hald o. fl.) en leggur sjálft til skipin og fragtina. Skipin eru skráð í Noregi, greiða sín gjöld þangað og eru mönnuð Norð- mönnum. Bandaríska skipafélag- ið sér sér hag í þessu, fyrst og fremst vegna þess, að laun norskra farmanna eru aðeins þriðjungur þess, sem gerist á bandarískum skipum. Laun ís- lenzkra farmanna eru svo aftur aðeins um helmingur þeirra Ef því íslenzkt skipafélag kæm- ist að svipuðu samkomulagi og þessi Norðmaður, gæti sam- keppnisaðstaðan varla verið betri. Lítið sem ekkert fjármagn þyrfti að leggja til, en þarna kæmu öruggar gjaldeyristekjur handa þjóðinni, auknir atvinnu- möguleikar fyrir íslenzka far- menn og loks nokkrir skildingar í tómar peningahirzlur einhvers hinna íslenzku skipafélaga. * Kaupskipaflotinn er veigainikill þúttur í þjódarkúskapiiiun. Tekst okkur að snúa óheillavænlegri þróun lians í sókn og auka liann, svo að sífjölgandi fslcndinguin megi eiga þar nokkurt athvarf við vinnu? VlKINGUR 73

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.