Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 38
HÖFUM VIÐ RflD A ? ■ ■ ■ ■ íslendingar! Verum samtaka nú. HlutafélagiS UTHAF hefur veriíi stofnaSi og skipa fyrstu stjórn þess eftirtaldir menn: Henry Hálfdansson, Siguróur Guójónsson, GuSm. Pétursson, Loftur Júlíusson og Ingólfur Stefánsson. * Hlutafjársöfnun stendur yfir lil kaupa á nýtízku verksmiSjuskuttogara. Von okkar er, sem aS þessu stöndum, aS sjómenn taki vel í máliS og gerizt flestir hluthafar í fyrirtœkinu. Hluti er liægt aS kaupa frá 1000 kr. og upp úr. * Munum, aS ef viS í félagi getum komiS upp slíku fyrirtœki, varSast leiSin til frekari framkvœmdu meS komu fleiri og betri skipa. MeS þvi tryggjum viS sjálfum okkur og niSjum okkar betri og bjartari framtíS. Ö.S. Þrjú tréskip hafa á stuttum tíma á núlíðandi stundu ,,gliöna:ð“ sundur, undir fótum skipshafnar, tvö sokkið en einu bjargað, illu heilli. 0g ennþá er okkur ráð- lagt að byggja öll minni skip (allt að 100 tonnum?) úr tré. Þessar ráðleggingar koma frá ábyrgum aðilum, svo sem skipa- skoðunarstjóra, í fróðlegum og skemmtilegum þætti í sjónvarpi fyrir. nokkrum tíma. Sú skoðun skipaskoðunarstjóra, „að heppi- legra muni vera að byggja öll smærri skip úr tré," og ég hafi leyft mér að taka sem ráðleggingu hans; hlýtur að byggjast á þeirri reynslu undanfarandi ára, að með hinum fullkomnu björgunartækj- um, sem íslenzk fiskiskip nú eru búin, hefur mannbjörg orðið í flestpm tilfellum þegar þessi „leka hrip" hafa gengið undir og þeirri staðreynd að vátrygginga- félögin borga, og gera kannske ekki mikinn mun (ef nokkurn) á skipum byggðum úr tré eða stáli. Þetta er kapítuli út af fyrir sig, sem sýnir og sannar að á þessu 82 sviði geta íslendingar verið „Stedig som en Islænder?“ Á þessum sama tíma sem þjóð- in hefur losnað við þrjár tréfleyt- ur — sem engan rétt eiga á sér á nútíma vélaöld. — Lagði varð- skipið Ægir upp frá Reykjavík með tvo „nýsköpunartogara“ í eftirdragi frá Reykjavík til Eng- lands, þar sem öll þessi skip skyldu fara í brotajárn. V.s. Ægir var að vísu orðinn nokkuð gamall, en að óreyndu verður því aldrei trúað að hann hafi ekki verið í nokkuð góðu ásigkomulagi, þannig að hann hefði getað annað einhverri þjón- ustu hér heima, í nokkur ár enn- þá, án mikils viðgerðarkostnað- ar. B.v. Sólborg var einn af hinum yngri og stærri „nýsköpunartog- urum“ og eitt vandaðasta skip flotans á sínum tíma. Hún var bú- in að liggja árum saman, ný klössuð, fyrst á Isafirði og síðan dregin til Reykjavíkur og hefur legið hér. Hún var árlega tekin í slipp til hreinsunar og eftirlits á botni. B.v. Brimnes var að vísu ekki eins vel haldinn, þó mun bol- ur og ýmis tæki í honum hafa verið í góðu ásigkomulagi, enda oft á „Slipp?“ sinn langa legu- tíma. Ekki er mér full kunnugt um söluverð þessara þriggja skipa, en varla mun það hafa ver- ið mikið yfir tvær milljónir ís- lenzkra króna. B.v. Sólborg ein hlýtur að vera búin að kosta ríkissjóð meiri upphæð í krónum síðan henni var lagt á Isafirði, en söluverð allra þessara skipa — því var henni ekki sökkt á sínum tíma? B.v. Brimnes, sem af einhverj- um ástæðum hefur verið taliðeitt- hvert vandræða skip, var búið að liggja í Reykjavíkurhöfn og á Kleppsvík í 8—9 ár og ekki sýndur sami sómi og b.v. Sólborg. Mun þó hafa verið allsæmilegt skip, og búið að kosta ríkissjóð drjúgan skilding. Með öðrum orðum hefur sölu- verð þessara þriggja skipa engan veginn nægt til þess að dekka þennan kostnað sem orðinn er á VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.