Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Page 11
1
Bandarískir strákar við æfingu í lífbátaróðri. Takið eftir flotvestum þeirra. Nemar
þessir stunda nám við sjómannaskóla, sem nefnist Harry Lundebergs sjómannaskóli.
að bíða í 15 tíma eftir aðstoð, þá
verður að hætta getgátuspili, en
gera sér raunhæfa grein fyrir
gæzluþörfinni og vinna síðan að
því að sú gæzla fáist framkvæmd.
Á þingi FFSl fyrir fjórumár-
um gerði ég ítarlega grein fyrir
því, hvaða öryggisstöðul við
þyrftum að miða við á hafinu
kringum landið. Þá var gengið út
frá, að skip þyrfti að meðaltali að
bíða mest 10 tíma eftir aðstoð.
Ekki þótti það mikið þá. Ástand-
ið er verra núna. Við þurfum
verulega bót á þessu ástandi. —
Björgunarkerfið krefst fjölgunar
varðskipa við gæzlu. Það er far-
sælla fyrir sjófarendur, helduren
að þui'fa að vera háðir duttlung-
um einstaklinga.
1 þessari umræðu minni um ís-
lenzka bj örgunarkerfið, hef ég
fyrst og fremst haldið á lofti
þeim skoðunum, sem ég hef lagt
fram og rætt á tveimur síðustu
þingum FFSl.
Ég tel þetta ennþá þau höfuð-
atriði í björgunarmálum, sem er
verðugt fyrir FFSl að vinna að
farsælum lausnum á.
Ég hef lokið umræðu um þessi
höfuðatriði, og leyfi mér að bera
upp svohlj óðandi tillögu til álykt-
unar með leyfi hæstvirts þing-
forseta.
Þing FFSl ályktar að FFSl
beiti sér fyrir eftirfarandi að-
gerðum til eflingar íslenzka
björgunarkerf isins.
1) Tilkynningarskyldureitakerf-
ið verði prentað á almenn sjó-
kort í notkun.
2) Tilkynningarskyldukerfið
verði svo fljótt sem unnt er
kynnt öllum innlendum og er-
lendum aðilum, sem gætu haft
gagn afþví.
3) Stofnað verði björgunarráð
íslenzkra b j örgunaraðila, hvar
sem starfssvið þeirra er og
með þátttöku þeirra allra.
Markmið ráðsins verði efling
íslenzka björgunarkerfisins.
Tilgangur ráðsins verði að
vinna að samvinnubjörgunar-
aðila, auka þekkingu á björg-
unarkerfinu og koma fram
fyrir hönd björgunarkerfisins
í heild.
4) Hugtakið „öryggisstuðull"
verði nákvæmlega skilgreint
og notað sem undirstaða fyr-
ir því, hvað sé talið öryggi og
hvernig því verði viðhaldið.
Þetta er „Ó3inn,“
sem einu sinni var
stolt fslendinga.
Vegna fátæktar
var skipið selt
til Svíþjóðar og
notað þar við
tollgæzlustörf.
VÍKINGUR
215