Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Síða 15
Gunnar Bjarnason,
skólastjóri.
Gó.'Jr heyrendur.
1 dag er Vélskólanum slitið í 55
skipti og í 4 skipti eftir breytinguna.
Þeir eru því orðnir margir vél-
stjórarnir, sem hlotið hafa menntun
sína í Vélskólanum og tekið virkan
þátt í þeirri miklu atvinnubyltingu,
sem varð á þessu tímabili.
Tveir af þremur þeirra er tóku
vélstjórapróf eftir fyrsta starfsvet-
ur skólans eru enn á meðal okkar
frískir og hvatir á fæti þótt áttræðir
séu. Báðir eru þetta þjóðkunnir
menn, sem skilað hafa þjóð sinni
miklu dagsverki og borið merki skól-
ans hátt, svo til fyrirmyndar og
hvatningar hefur verið alla tíð. Eru
þetta þeir Gísli Jónsson, fyrrum al-
þingismaður og Hallgrímur Jónsson
vélstjóri.
Æviferill þessa tveggja fyrstu vél-
stjóra frá skólanum bera þess glöggt
Vélskóla Islands slitib
í SS. sinn
vitni að þeir nutu hagnýtrar og
góðrar menntunar í skólanum. Gísli
Jónsson starfaði fyrst sem vélstjóri,
en tók síðar að sér eftirlit með vél-
um og ráðleggingarstörf fyrir út-
gerðina. Mikilvægt og þjóðnýtt
starf. Síðar var hann alþingismaður
um langt árabil og naut þar mikils
trausts samþingmanna sinna sem
annarra. Kom það m.a. þannig í ljós
að hann var valipn í margar trún-
aðar- og virðingarstöður Alþingis.
Gísli hefur nú dregið sig til baka úr
athafnalífinu, enda orðinn rúmlega
áttræður.
Hallgrímur starfaði alla sína tíð
sem vélstjóri, lengst af sem yfirvél-
stjóri á skipum Eimskipafélags ís-
lands. Hann var um árabil yfirvél-
stjóri á Gullfossi, flaggskipi félags-
ins. Hafa því margir vélstjórar, sem
nú eru í starfi, hafið sinn vélstjóra-
feril undir handleiðslu hans. Hall-
grímur naut alla tíð mikils trausts
og virðingar í starfi sínu. Eftir að
hann kom í land sakir aldurs, starf-
aði hann um árabil í sjódómi og
varamaður í prófnefnd Vélskólans
var hann um árabil.
Báðir hafa þessir heiðursmenn
sýnt skóla sínum margs konar
tryggð og viðurkenningu. Við þetta
tækifæri vil ég færa þeim þakkir
skólans og óska þeim friðsæls og
hamingjusams ævikvölds.
Einn af nemendum skólans er
settist í fyrsta bekk á fyrsta starfs-
ári var Þorsteinn Árnason vélstjóri,
sem nú er nýlátinn. Þorsteinn lauk
vélstjóraprófi vorið 1927 og starfaði
lengi sem vélstjóri. Hann fór síðar í
land og starfaði að félagsmálum vél-
stjóra um árabil. Síðustu árin starf-
aði Þorsteinn fyrir vátryggingarfé-
lög.
Hann átti sæti í prófnefnd skól-
ans frá 1948. Það var í því starfi
sem ég kynntist Þorsteini persónu-
lega. Hann var mikill mannkosta- og
áhugamaður og ég vil segja mikill
vélstjóri. Hann hafði brennandi á-
huga á öllu, sem verða mætti vél-
stjórastéttinni og starfi hennar til
hagsbóta, þar með talinn Vélskólinn.
Síberíu fyrir tempruðu loftslagi og byggilegum að-
stæðum.
Hve lengi hefur straumurinn streymt? Jarð-
fræðingar áætla um 60 milljónir ára. Guð gefi að
hann hætti því ekki, breytist ekki, eða breyti stór-
lega um stefnu, slíkt gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar og áhrif á afkomu okkar litla og afkomuveika
eylands.
Þrátt fyrir það sem áunnist hefur í rannsóknum
á honum, kortlagningu, og öðrum fróðleik, mun
hann samt halda áfram að vera náttúruundur, eins
og hann hefur lengst af verið. Við þurfum bara að
halda áfram að læra meira um hann, staðsetja
VÍKINGUR
hann, rannsaka breytingar á leið hans og straum-
hraða frá degi til dags, frá stað til staðar. Við
verðum að vita og skilja slíka hluti, sem áhrif hans
og gildi fyrir veðráttuna, siglingamar, fiskveið-
arnar og almennt líf fólksins á norðurhveli jarðar.
Með hliðsjón af hinni nýju tækni í hafrannsókn-
um og vaxandi áhuga á þeim málum, neðansjávar-
skipum, sem byggð hafa verið og byggð verða, má
vona með alþj óðasamvinnu í hafrannsóknum, að
svör við þessum stóru spurningum séu ekki svo
mjög langt undan.
Þýtt úr Compass af
Bimi Ólafssyni, loftskeytamanni.
219