Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Qupperneq 16
Ég vil biðja viðstadda að minnast
Þorsteins Árnasonar með því að rísa
úr sætum.
Aðsókn að Vélskólanum hefur
aukist mjög. Hér í Reykjavík var
tala nemenda í skólanum fyrir 1966
frá 80 í rúmlega 100 stöku sinnum.
1966 voru nemendur 137; 1967
145; 1968 143 og 1969 voru nemend-
ur 214 og útlit er fyrir að þeir verði
enn fleiri næsta vetur.
Þessi mikla aukning veldur ýms-
um vandamálum. Kennslustofur eru
9 í skólanum og ein þeirra er frá-
tekin fyrir stýritækni. Bekkjardeild-
ir voru 10 s.l. vetur. Hægt var að
bjarga þessu við með því að kenna
í anddyrinu. Næsta vetur er reiknað
með 13 bekkjum. Hvernig því verður
bjargað er enn óráðin gáta.
Annað mjög alvarlegt vandamál í
sambandi við þessa fjölgun er skort-
ur á kennurum. Því miður eru kenn-
arastöður við Vélskólann ekki eftir-
sóknarverðar. Menn gefa sig ekki í
þetta nema þá sem aukastarf. Sem
dæmi má nefna að maður var lánað-
ur frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
til að kenna rafmagnsfræði nú í
haust. Það var ekki fastmælum
bundið, heldur aðeins til reynslu. í
ljós kom að starf hans truflaðist svo
mjög við þessa kennslu, að hann
varð að hætta á miðjum vetri. Líkt
þessu henti í fleiri kennslugreinum.
Þótt slíkt leysist einhvernveginn er
augljóst að það getur aldrei orðið
nema neyðarráðstöfun og veldur
alltaf mikilli truflun. Þetta er þeim
mun alvarlegra sem námið í skólan-
um er mjög hart sótt.
Ég vil þakka öllum kennurum
skólans fyrir ágætt starf þeirra í
vetur. Ef þeir hefðu ekki tekið á sig
margvísleg aukastörf hefði vandinn
ekki leystst eins giftusamlega og þó
varð raunin.
Þess er að vænta að úr húsnæðis-
vanda skólans leysist á næstunni og
einnig úr kennaraskortinum. En það
getur ekki orðið með öðrum hætti en
að kennarastörfin verði greidd sam-
kvæmt eðlilegum launaflokki, þ.e. í
sama flokki og menntaskólakennar-
ar eru, eins og annars staðar.
Starfsemi skólans á Akureyri var
í vetur rekin eins og í fyrra: 1. og
2. stig, í Vestmannaeyjum var rekið
1. stig. í ráði er að 2. stigs kennsla
hefjist næsta haust í Vestmannaeyj-
og er það nú í undirbúningi.
1. stigi lauk á öllum þrem stöðum
28. febrúar og voru afhent samtals
109 skírteini 1. stigs.
Að þessu sinni verða afhent eftir-
farandi skírteini:
2. stig Ak. 11
2. — Re. 47 58
3. stig Re. 37
4. — Re. 26
Samtals 121
Eða samtals á landinu 230 skírteini
allra stiga.
Síendurtekin spurning er hvort
ekki sé verið að stofna til offram-
leiðslu á vélstjórum. Ég held ekki
að svo sé, enda er skortur á vél-
stjórum á fiskiskipum og eftirspurn
eftir vélstjórum í landi er þó nokk-
ur. Hún fer áreiðanlega vaxandi með
aukinni iðn og vélvæðingu atvinnu-
veganna, enda fer sá skilningur vax-
andi, að alls staðar þar sem vélar
Tveir vélstjórar framan vió gufuvél í tog-
ara. — Sá til hægri er Andrés Andrésson,
sem mikið liefur starfað í félagsmálum
vélstjóra.
eru notaðar, er þörf kunnáttumanna
til að sjá um þær.
Námsárangur þessa skólaárs má í
heild teljast mjög sæmilegur og í
mörgum tilvikum ágætur. í Reykja-
vík náðu framhaldseinkunn
úr 1. stigi 61%
2. — 59%
3. — 80%
miðað við þá er hófu nám í haust.
í 4. stigi stóðust allir prófið.
Fjalarbikarinn sem er farandbik-
ar, gefinn af vélsölufyrirtækni Fjal-
ar h.f. og veitist þeim nemanda, sem
beztum árangri nær við’ 3. stigs
prófið í vélfræði, veitist að þessu
sinni Einari G. Gunnarssyni, sem
var nemandi í 2. bekk A. Hann hlaut
34,1 stig af 36 mögulegum.
Þýzka sendiráðið hefur sent bóka-
verðlaun, eins og að undanförnu.
Eftirtaldir nemendur úr 4. stigi
hljóta þau, fyrir framúrskarandi ár-
angur í þýzkunámi:
Helgi Laxdal hlaut 9,2
Þórður Jónasson —• 9,0
Óli Már Aronsson — 7,8
220
VÍKINGUR