Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 23
Hann verður að líkindum tilbú-
inn eftir miðjan júnímánuð næst-
komandi. Báturinn verður súð-
byrtur, sem kallað er. Vél hans
verður 98 hö. I honum verður
línuspil, og þessvegna klár til
veiða bæði á línu og handfæri eft-
ir því sem henta þykir. Radar
verður í bátnum, 20 sjómílna,
talstöð og dýptarmælir. Fimm
færarúllur, rafknúnar. Ég hef séð
þessa gerð báta og vil segja það,
að ef ég hefði verið ungur, þá
hefði mig langað til þess að eiga
þannig bát. Þeir eru prýðisfalleg-
ir og í alla staði vel frá þeim
gengið, sem bezt verður séð.
Svona má vel róa héðan frá byrj-
un marz og fram í endaðan nóv-
ember, og ég efast ekki um það,
að ef vel væri sótt með ráðdeild
og samhuga sameignarmanna,
mætti gera það stórlega gott á
svoleiðis bát.
M. b. Guðmundur frá Bæ, sem
keyptur var hingað í júlí í fyrra
sumar, hefur lítið landað hér
heima öðru en því, sem hann fisk-
aði síðastliðið sumar, eða um 85
tonn af færafiski. 1 haust og fram
í marzmánuð stundaði hann
hörpudiskaveiðar í Isafjarðar-
djúpi, og fiskaði samtals 70 tonn.
Hann seldi þann afla í Súðavík.
Frá því í miðjum marz til 30. maí
stundaði hann róðra með línu frá
Flateyri, og afli hans varð þann
tíma 219,3 tonn. Ekki veit ég
enn, hvaða veiðar hann stundar
í sumar.
Hér er svo svolítið í viðbót:
Vér bíðum nú í ofvæni eftir
því, þegar þetta er skrifað, að
verkfall það, sem nú stendur yfir,
leysist hið bráðasta og launþegar
megi að því loknu vel við una. En
sjómenn strjúka nú sveittan
skalla og virðast láta sér nægja
hvern dag sína þjáningu. Að öðr-
um kosti hefðu þeir sagt upp fisk-
verðssamningnum fyrir 1. maí
eins og hægt var að gera sam-
kvæmt fiskverðssamningi frá því
í vetur. 1 fiskverðssamningi
stendur eftirfarandi m. a.:
„Hafi verðákvæðum þessum ekki
verið sagt upp af fulltrúum fisk-
kaupenda eða fiskseljenda í Verð-
VÍKINGUR
lagsráði fyrir þ. 1. maí 1970, gild-
ir lágmarksverðið óbreytt til 31.
des. 1970“.
Hvað er svo að? Eru sjómenn
ekki nógu vel vakandi fyrir sín-
um velferðarmálum? Eða hafa
þeir sofandi menn í landi, sem
eiga réttilega að fylgjast með
öllu fyrir þeirra hönd, sjómann-
anna? Láta þessir menn fljóta
sofandi að feigðar ósi? Ef svo er,
ber að losa sig við þá karla og fá
sér dugandi menn í þeirra stað.
Þetta verður svo ekki lengra að
þessu sinni, og ég vona, að ykkur
leiðist ekki á meðan þið lesið
þetta spjall. Verið bless.
Gísli.
Áthygll vakin á nýjum útvarpsþættl
Nýlega hófst þáttur í útvarpinu er nefnist ViS sjóinn.
Farmanna- og fiskimannasamband Islands hefur um lang-
an tíma haft hug á því, að fluttur væri reglulega þáttur
tileinkaður sjó og sjávarútvegi. Ekki verður sagt í upp-
hafi hvernig gengur að fá flytjendur, þó hafa nokkrar
stofnanir tekið vel málaleitan um að láta af hendi rakna
efni til þáttarins. I fyrsta þættinum var getið um, að
menn gætu sent bréf og gætu lagt fyrir þáttinn spum-
ingar og yrði úr þeim unnið eftir því sem kostur væri á.
Sjálfsagt er að reyna til þess að efnið verði sem fjölbreytt-
ast og geta menn stutt það meðal annars með því, að senda
fyrirspurnir til þáttarins.
Mary Dcarc
frh. af hls. 240
ið hélt áfram leið sína á fullri
ferð.
Þegar við gengum niður, leit ég
aftur eftir skipinu og sá gúmmí-
bátinn okkar eins og gulan díl á
haffletinum í kjölsogi skipsins,
þar sem hann lyftist á bröttum
bylgjukambi.
Framhald í næsta blaði.
Þetta er mynd af „Bremen“. Enn eru menn í hugleiðingum um stór skemmtiferðaskip
sem hvíldarstaði fyrir þreyttan almenning.
227