Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 12
Hafrannsóknir á árinu 1970 Skýrsla um starfsemi Hafrann- sóknarstofnunarinnar. Þetta ri\t, er sennilega sjaldséó meóal sjó- manna. Væri ekki rétt, að sjá menn fylgdust betur með starf- semi Hafrannsóknarstofnunar- innar? En hvar er það rit að finna? Þessu riti ætti að útbýfa um borð í hvaða fiskiskipi sem er. Það má líka gagnrýna þessa stofnun, ekki síður en aðrar stofnanir. KÆKJURANNSÓKNIR Rækjurannsóknir hafa verið til fyrirmyndar undir stjóm Unnar Skúladóttur, í ísafjarðardjúpi, enda þarf strangt eftirlit með veiðum innfjarða. Þetta ættu aðrir fiskifræðingar að hafa til fyrirmyndar. En slælegt eftirlit og rannsóknir hefur mér fundist á öðrum fjörðum, eins og t. d., þegar rækjan fannst í Berufirði, sem var á litlum bletti í firðinum, með því að hleypa á miðin öllum bátum á Austfjörðum, sem til- búnir voru á þessar veiðar, í stað- inn fyrir að takmarka veiðarnar fyrir svo sem tvo báta frá Djúpa- vogi, eins og í upphafi var farið fram á. Mér finnst öðru máli gegna með úthafsrækjuveiði, þótt mikið hafi verið talað um seiða- dráp í Miðnessjó. Þá þarf ekki síður að fylgjast með fjörðum þar sem mest ungviði vex upp, eins og t. d. okkar uppáhaldsfiska loðnu og síldar og fleira ungviði. HUMARRANNSÓKNIR Um humarrannsóknir get ég ekki látið hjá líða að skrifa um, þó valist hafi í það verkefni einn 344 af okkar efnilegustu ungu fiski- fræðingum, sem við eigum, Hrafnkell Eiríksson. Það sýnir greinin í áður nefndu riti um humarrannsóknir og hörpudiska- rannsóknir. Þó hefur verið skor- ið við nögl tími og fé til þess- arar rannsóknar. Hann segir í þessari grein um humarrann- sóknir. Engum dylst að sóknin sé víða of mikil, einnig að hald- bezt væri að stytta veiðitímabilið. í lok greinarinnar minnist hann á að róttækar friðanir, t. d. lokun vissra veiðisvæða um tíma, þar sem vitað er að humarinn er sérstaklega smár, eða kvóta fyr- irkomulag. Og þetta þyrfti að koma sameigilega frá fulltrúum hinna ýmsu aðila, sem hér eiga hlut að máli. En svo bætir hann við: Að slíkum aðgerðum verður ekki auðhlaupið. En mér er spurn. Hver á að stoppa þær að- gerðir, sem hann hefur áhuga á? Hefur hann ekki mest vit á hvaða aðgerðum er rétt að beita í þessum efnum? Eiga mennimir í djúpu stólunum, með penna í hendinni uppi í ráðuneyti og þeir sem taka gróðann af að vinna aflann að ráða þeim aðgerðum, sem skynsamlegastar eru til verndunar humarstofninum? HÖRPUDISKARANNSÓKNIR Um rannsóknir á hörpudisk undir stjórn Hrafnkels Eiríks- sonar, er ekki annað en gott að segja, enda skammt á veg komn- ar. En vonandi verður fylgst það vel með sókn á þann fisk, að ekki verði um ofnýtingu að ræða, eins og var gert á humarsvæðunum við Eldey og suður af Snæfells- jökli. RANNSÓKNIR Á ÞORSKSTOFNINUM 1970 í þessari grein í áður nefndu riti er erfitt að átta sig á neinni heildarmynd þorskstofnsins. Þó að margir leiðangrar hafi verið farnir á árinu 1970, og mikið verið rannsakað í þeim. En eng- um dylst, hve kynþroska hluti þorskstofnsins fer minnkandi og um verulega ofveiði er að ræða. NORSKA VORGOTSSÍLDIN í þeirri grein er lj óst, að engin síld fékkst af þeim stofni til rannsóknar, og því engar álykt- anir gerðar af þeim leiðangrum, sem famir voru. Þurfa sjómenn líklega lengi að bíða eftir við- hlítandi svari við því fyrir- brigði. ÍSLENZKA SÍLDIN I þessum greinum um síldina við ísland segir: Ljóst er að þrátt fyrir veiðitakmarkanir, sem sett- ar hafa verið til verndar síldinni við Island, sé hún í miklu lág- marki, og endurnýjun stofnsins 1970 sé minni en 1969. Enn seg- ir í greininni, að veiðitakmark- anir hafi orðið til góðs. I þess- um greinum og töflum, sem þeim fylgir virðist ekki svo gott að átta sig á hvað bíður íslenzka stofnsins. En eftir veiði og síldarleit undanfarandi ára, virðast fiskifræðingar vera held- ur bjartsýnir með kvótann. En eitt finnst mér athugavert, hvað lítið er fylgst með síldarseiða- magni í okkar djúpu fjörðum og VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.