Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1985, Blaðsíða 55
Hörpudiskurinn er tegund sem hentar vel til eldis á noröurslóðum. Visindamenn í Tromsö eru komnir vel
áleiðis við aö þróa aðferðir til eldis hans.
Laxaseiði.
. -
Sjúkdómarannsóknir eru snar þáttur i starfi stöðvarinnar. Myndin sýnir
sýktan fisk.
sótt hafa um og fullnægt inn-
tökuskilyrðum hafa fengið
inngöngu við deildina á und-
anförnum árum. Hafa flestir
þeirra fengið húsnæði á stúd-
entagörðum sem sækja verð-
ur sérstaklega um. Námið
miðast að sjálfsögðu að
skipulagningu og þörfum
norsks sjávarútvegs. Þó má
segja að aðsókn útlendinga
hafi oröið til þess að móta
námið að töluverðu leyti.
Þannig er t.d. farin ein ferð á
ári hverju til annarra landa til
að kynnast sjávarútvegi viö-
komandi lands, og verður þá
gjarnan fyrir valinu heimaland
einhvers í þeim árgangi sem
fer. Léttir þetta m.a. allan und-
irbúning og framkvæmd slíkra
ferða. Einnig má geta þess að
hverri námsgrein lýkur yfirleitt
með ritgerð um ákveðið sjálf-
valið efni og geta menn sótt
efniviö slíkra ritgerða til sinna
heimalanda aö vild. Á þennan
hátt geta menn komist hjá þvi
aö læra bara um norskan
sjávarútveg, en segja má að
flestar greinar sem kenndar
eru við deildina séu það al-
mennar að þær gildi alveg
eins fyrir islenskan sjávarút-
veg og norskan. Aö auki eru
oft fengnir erlendir fyrirlesarar
og alþjóðaráðstefnur eru
haldnar sem hafa orðið til
þess að opna námiö. Þaö er
samdóma álit þeirra íslend-
inga, sem hafa stundað nám
við deildina, að þeim tíma hafi
verið vel varið og að full not
séu fyrir þá þekkingu og
reynslu á íslandi sem menn
hafa viðað að sér með dvölinni
i T romsö.
1) UniversitetetiTromsö,
Studieavdelingen,
Postboks 635,
9001 Tromsö.
... en segja má aö
flestar greinar,
sem kenndareru
viö deildina, séu
þaö almennar aö
þærgildi alveg
eins fyrir íslenskan
sjávarútveg og
norskan.
Víkingur 55
i